Jæja kallinn komin heim með þetta svaka hjólhýsi......

og þá er bara að fara að rúlla af stað. Sótti stundaskrána mína í dag og hún er að mínu mati fullkominn hvað varðar tíma og annað slíktSmile Er að fara í þýsku, ensku, stærðfræði, íslensku, listir og menning, myndlist og bóklegan íþróttaáfanga......ég skal sleppa við verklegu íþróttaáfangana og lífsleikni....ég meina það í alvöru á ég að fara að hoppa og skoppa í íþróttum 35 ára með 17 ára krökkum eða á að fara að kenna mér hvernig lifa á lífinu td kynfræðslu.....soldið seint í rassinn gripiðLoL En jæja best að halda áfram að pakka, stefnan sett á snæfellsnesið....ég elska þann staðSmileHeart og fyrir ykkur öll 8 dagar í dag síðan ég hætti að reykja...JÍBBÝ JEI!!!!!!!!!!!!

                                prod_780_22753

   Hvað sagði Tarsan þegar hann sá fílana 5 koma hlaupandi niður hæðina?

Svar: Þarna koma fílarnir 5 hlaupandi niður hæðina.

Hvað sögðu fílarnir 5 þegar þeir sáu Tarsan koma hlaupandi nakinn niður hæðina?

Svar: Ekki vildi ég vera með svona lítinn rana.

 

Hafið það öll ofur gott um helgina,hvar sem þið verðið og hvað sem þið geriðSmile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Indriðason

Hvað sagði Jane þegar hún sá fílana koma hlaupandi niður hæðina?

"Þarna koma plómurnar hlaupandi niður hæðina"  (Hún var sko litblind sko)

En hvað sagði Jane þegar hún sá fílana koma niður hæðina, með sólgleraugu?

"Þarna koma plómurnar hlaupandi niður hæðina, með sólgleraugu"  (Hún var sko litblind sko)

En góða skemmtun á Snæfellsnesinu, og gangi vel í loftvinnslunni :-)

Einar Indriðason, 17.8.2007 kl. 15:50

2 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Hafðu það gott á Snæfellsnesinu Elín mín.  Við fórum þangað í sumar í blíðskaparveðri og það var æðislegt

Frábært með skólann.  Gott hjá þér að drífa þig í þetta allt saman.  Og ég segi bara Auf Wiedersehen (var þetta ekki einhvern veginn svona )

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 17.8.2007 kl. 16:39

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Góða ferð og skemmtun!

Þú sleppur við leikfimi og lífsleikni. Ég kláraði þennan stúdent fyrir 2 árum og var leyft að taka bara e-ð annað í staðinn. Við gætum sennilega kennt þennan lífsleikniáfanga! 

Laufey Ólafsdóttir, 17.8.2007 kl. 20:46

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, en afhverju fór Tarsan yfir hæðina?? hann komst ekki undir 

Ásdís Sigurðardóttir, 17.8.2007 kl. 20:51

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson


Gunnar Helgi Eysteinsson, 17.8.2007 kl. 21:06

6 Smámynd: Saumakonan

djö... gastu ekki farið í hina áttina og heimsótt mig í staðinn???

have fun á ferðalagi

Saumakonan, 17.8.2007 kl. 21:26

7 Smámynd: Garún

Til hamingju sjálf.  Ég er líka búin með 8 daga.  Ég hætti kl. 22:15 að kvöldi þann 9.ágúst.  En ég ætla samt að reikna það sem 10 ágúst því þá varð bróðir minn tvítugur.  Flott hjá þér, en ég mæli nú samt með að þú skráir þig í kynfræðslu, það er aldrei að vita nema að hlutirnir hafi updatast eitthvað og það er komið eitthvað nýtt sem þú veist ekki um.  Kannski eru þeir búnir að finna G blettinn.  Maður veit aldrei.  

Garún, 17.8.2007 kl. 21:30

8 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

þú ert svo dugleg elsklu vinkona.  ´Hafið það gott í fríinu og segðu Bjössa að reyna að veiða eitthvað

Sædís Ósk Harðardóttir, 17.8.2007 kl. 23:19

9 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Snæfellsnesið er bara frábært!  Fór þar einu sinni í mikinn "gleðidans" hjá Gulla heitnum Bergmann.  Voru með mikla "andlega helgi" Bergmannhjónin fyrir haug af fólki!  Ég get ennþá veinað af hlátri þegar ég hugsa um "gleðidansinn"....country ala færeyskir þjóðdansar....tær snilld!  Kemur mér alltaf í gott skap.  Njóttu vel staðarins.  Og gangi þér vel í náminu.  Brilliant hjá þér að drífa þig.

Sigríður Sigurðardóttir, 17.8.2007 kl. 23:48

10 identicon

Til hamingju með skólann og reykleysið. Þú ert svo dugleg. Góða ferð á Snæfellsnesið

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.8.2007 kl. 19:50

11 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Einar, Rannveig, Valgeir,Lafey, Ásdís, Gunnar,Saumakona, Garún, Sædís,Sigríður og Birna Þúsund þakkir fyrir kommentin þau biðu eftir mér og glöddu mig þegar ég kom heim. Þið eruð öll æði Knús á ykkur öll

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 19.8.2007 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband