Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Rétt að láta vita af mér.....

Hef ekki alveg jafn mikinn tíma til að blogga og var líka að fatta facebook. En sem sagt ég er byrjuð í skólanum aftur á fullu + það að mammast og sjá um heimili og þarf einmitt núna að rjúka og læra, ætla með litlu syss heim til hennar að læra heimavinnuna mína. Það er alltaf svo margt sem truflar hérna heima....og núna er ég ekki að tala um börnin heldur, tölvur, sjónvarp, sími og slíkt. Anita og Linda eru hjá vinkonu sinni í Breiðholti og Carmen Helga gistir á Eyrarbakka hjá mömmu og pabba.

En kem með betra blogg næst.......Góða helgi, þið öll.Heart

9979315016

p.s. Á einhver þessa bók og vill selja mér hana fyrir eitthvað lítið?????


Var bent á þetta stórskemmtilega.............

myndband og verð að segja eins og er að mín tvö ADHD börn blikna í samanburði við þennan pjakk.

Meira að segja minnsti púkinn minn, sem er gjörsamlega að rifna úr frekju verður að postulínsdúkku..........

Hrikalega fyndið og eitthvað samt svo sætt við þettaLoL

Sjón er sögu ríkari........

Eigið góðan dag í dag........Ég sjálf ætla að nota daginn í að læra.


Takk fyrir öll ykkar........

fallegu komment og fallegu orðHeart

Jæja, ég var klukkuð af gömlum vini mínum honum Heimi Tomm og get ekki skorast undan því.

 

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
 

Í fiski og hafði gott af.

Alpan pönnuverksmiðju.

Öryggisvörslu.

Sjálfboðaliði í Konukoti, athvarf fyrir heimilislausar konur.

 

Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:

Juno.

Forrest Gump.

Til sammens.

Passion of the Christ.

Annars er ég sjúklegur áhugamaður góðra kvikmynda og elska að horfa á góðar og vel leiknar kvikmyndir.

 

Fjórir staðir sem ég hef átt heima á:

Eyrarbakki.

Reykjavík.

Sviss.

Akureyri.

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

CSI.

Law and order.

Næturvaktin og pottþétt dagvaktin sem ég bíð spennt eftir.

Fóstbræður.

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Búlgaría.

Þýskaland.

Skotland.

Fullt af stöðum hér á fróni.

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

Heimasíðan hennar Stebbu frænku.

Dreifnámið á heimasíðu FB.

Myspace.com

mbl.is

Fernt sem ég held uppá matarkyns:

Sushi.

Slátur.

Kjúllapottrétturinn hennar mömmu.

Þorramatur.

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

Ævintýri góða dátans Sveijks.

Englar alheimsins.

AA bókin.

Biblían.

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Helga Nanna.

Maríanna.

Ásthildur Cecil.

Aðalsteinn frændi.

 

Gaman að þessu bara........

En jæja, farin að læra fyrir próf sem ég er að fara í núna kl 11:25. í Myndlistasögu.

Sjáumst og heyrumst.


Og aftur koma veislumyndir.......

Þ.E.A.S fleiri......

8c9a911a-b510-43e1-b327-977e8509d31a_ms

Fallega Álfrúnin mín

9be024bb-e92f-4440-8c6c-c5d3fcff8e71_ms

Litla freka fallega örverpið.

ac5e4586-c20d-470a-ae59-dafe0da245b0_ms

Fallega Anitan mín, dansaði svo flottan dans sem hún samdi fyrir daginn.

b7f245ec-b6a8-41c3-81e1-e3932280e460_ms

Er hún ekki dásamleg????

b51a5beb-f3f6-4448-b591-03aefb9cef7e_ms

Sindri okkar, Linda okkar og Ægir okkar, og þarna sést líka hálf Gréta en hún er ''tengdamamma mín'' Frábær kona.

20080819154211_12

Hafist handa við að skera kökuna.

cba946a3-b714-429f-9949-a9aacdf087c5_ms

Á efstu kökunni sátu hjónin Barbapabbi og Barbamamma og sex stykki Barbabörn.......

Kakan var flott og bragðið enn betra........Snillingur hún Sandra Dís.

b3b90671-941f-47ea-b0c7-ae789316367d_ms

Fallegu mæðgurnar Hildur Svava Atladóttir og Stefanía Þóra Jónsdóttir.

e531635b-8edd-496c-ab62-88b01f60ff02_ms

Anita okkar söng líka Ísland er land þitt og gerði það svo vel.

f1672552-a446-469b-b7f9-bdc1278dc478_ms

Jón Bryngeir Skarphéðinsson og Karen Dröfn Hafþórsdóttir uppáhalds söngkonan mín.

68d1fefe-d957-4aba-a283-1107f57a8179_ms

Önnur mynd af leiknum góða, og virðumst við af þessari mynd að dæma vera bara þó nokkuð sammála.

8da0c501-0696-4af0-bb5b-931f79448443_ms

Og við drukkum kaffið okkar úr Barbabollum.

d1caebc1-bc2e-4665-9d39-659cec640597_ms

Við hjónin ásamt foreldrum mínum, mamma er snillingur í að skreyta sali og átti hugmyndina af öllum skreytingum og gerði þetta allt svo flott fyrir okkur.

2299cd11-6c8b-40fd-ac83-61f15562fa9a_ms

Álfrún Auður með nýgiftu mömmu sinni, Bjössa bónda mömmu sinnar, ömmu sinni og afa sínum sem sjá svo vel um uppeldið á henni og bróður hennar..........Það er ekkert leyndarmál að ég á bestu foreldra í heimiHeart

Svo til að leyfa þeim sem lesa að lifa sig inn í vígsluna mína ætla ég að setja link á lögin þrjú sem Karen frænka söng í kirkjunni en verð að hryggja ykkur með því að hún söng það samt miklu betur en eigendur laganna.

Njótið.......

Góða nótt og Guð geymi ykkur öll........

 


Kósýkvöld í kvöld.......

Nammi, teppi, púðar og kúr.......

Kallinn kemur úr veiði í kvöld, sagði hann mér að hann hefði veitt þann stærsta til þessa.

Ok. Nokkrar myndir úr veislunni.

4927f95e-0dbb-47e5-bbcb-7f32ed89bb6b_ms

Þarna bíða foreldrar og systkini eftir að brúðhjónin klári að láta mynda sig.

7171930a-ad18-42ed-aee5-a4041ec46185_ms

Gjafaborðið.

20080819154053_7

Skál í boðinu.

1a916060-b906-472e-b956-3ebb222bbf3a_ms

Bjössi stóri, hennar Stebbu frænku og Sandra frænka mín sem á heiðurinn af brúðartertunni okkar.

7b1ae727-be01-4613-9d21-369e8430e81a_ms

Stebba frænka og amma Stebba.

9b18fdf1-a2f6-4fd7-80e3-3413fc1a8450_ms

Sædís æskuvinkona mín hélt ræðu sem var ansi skemmtileg.

71ca97ba-ca78-4b90-8ff4-80b9942c6044_ms

Elsku besti bróðir í heimi og yndislega mágkona mín.

74b29e43-8e50-4ecd-af82-fd500e79ade0_ms

Karen frænka og kæróinn hennar hann Nonni, en þess má einmitt geta að hún söng svo yndislega í kirkjunni og voru allir sammála um það. Hún er líka litla systir bakarameistarans.

128ad84e-d839-4991-ad0d-8da9a83d9f47_ms

Ég og Oddný vinkona mín.

417e0fb5-e73e-45d0-9a00-d8e235893c1c_ms

Carmen Helga Björnsdóttir.

20080819154125_9

Frábæru veislustjórarnir, Eiríkur Már bróðir minn og Aðalsteinn frændi minn, og fór sá síðarnefndi á kostum í uppistandi og var salurinn lamaður af hlátri.

20080819154141_10

Við hjónin í skemmtilegum leik.

a9ef3c9c-1b50-4788-8fc8-2f562463de24_ms

Linda Rut og Anita Ögn.

Fleiri myndir seinna, farin að borða.

Later..........


Akkúrat stíllinn sem ég er búin.......

að vera að leita að......

Mig langar sjúklega í svona stofu........

Hver hefur líka ekki gaman að góðri sápu.

 

e311840_20A

Ætla að halda áfram að koma púkunum í bólið..........

Svo verður gerð önnur atlaga á brjáluðu ofvirku og viðbjóðslegu óvini mína sem eru búnir að ákveða að drekka kókið mitt og kaffið mitt líka, trufla mig í símanum, reyna að komast inn um gluggana hjá mér sem gerir það að verkum að bráðum köfnum við öll úr súrefnisleysi og það versta: Þeir laðast að reykingafólki og núna reyki ég á methraða í flækju af spennu og kvíða og hræðslan að drepa mig.......Þeir safna líka liði.....Ég hef komist að því og rétt áðan voru þrír af þessum gaurum búnir að króga mig af út í horni starandi í óttasleginn  augun á mér og ég get svo Guðs svarið það að þeim var skemmt.

Good night everyone.

 


Þetta er snilld ;)

Uppgjör 2008 Kæru vinir!
Nú þegar árið 2008 er meira en hálfnað    langar mig að nýta tækifærið og þakka fyrir alla tölvupóstsendingarnar sem ég hef fengið frá ykkur. Ég verð að segja að lífsgæði mín hafa aukist til muna við sendingarnar.

Takk til þess (hver sem það nú var) sem sendi mér upplýsingarnar upp að það hefði í mörgum tilfellum fundist rottuskítur í límröndinni á umslögum. Þær dýrmætu upplýsingar leiddu  til þess að ég nota nú votan klút í hvert skipti sem ég þarf að loka umslagi. Af sömu ástæðu finn ég mig nú knúna til að þvo hverja dós sem ég þarf að opna.

Í dag á ég heldur ekkert sparifé, þar sem ég hef sent það allt til litlu veiku stúlkunnar (Penny Brown) sem er akkúrat núna í andaslitrunum á sjúkrahúsinu í 1.387.258 skiptið.
Ég á í rauninni enga peninga lengur… en það mun náttúrulega breytast um leið og ég fæ 500.000 $ sem Microsoft ætlar að senda mér fyrir að hafa verið "exclusivur" þáttakandi í e-mail prógramminu þeirra. Ég á líka von á aur frá miðaldra getulausum bankastarfsmanni frá Nígeríu sem hefur lofað að deilda 7 milljónum $ með mér. Aur sem hann erfði eftir að gleymdur ættingi hans lést í skelfilegu umferðarslysi í höfuðborginni Abuja. Yndislegur maður hann Ade Oluwa… alveg sérstök sál.

Sem betur fer þarf ég ekki að óttast um sál mina, þar sem ég er blessuð með 363.214 englum sem passa mig og vakta sérhvert spor mitt og St. Helena hefur líka boðist til að uppfylla allar mínar óskir.

Mig langaði bara að segja ykkur frá því að ég nota ekki lengur krabbameinsvaldandi svitalyktaeyði, þrátt fyrir að ég lykti illa af svita á heitum sumardegi. Ég er alveg hætt því!

Takk fyrir að sýna mér og kenna að óskir mínar muni aldrei verða uppfylltar nema ég áframsendi tölvupóstana mina til amk 7 einstaklinga á innan við 5 mínútum.
Ég vil einnig þakka ykkur fyrir að hjálpa mér með að hætta að drekka Coca Cola, og upplýsa mig um að það megi hreinlega fjarlægja kalkúrfellingar úr salernum með því.

Ég set aldrei lengur bensín á bílinn hjá Olís án þess að vera vakandi fyrir því að pólskur fjöldamorðingi sem komist hefur ólöglega inn í landið, gæti mögulega hafa laumað sér á í aftursætið meðan ég fylli tankinn.

Ég svara ekki lengur neinum sms-um, þar sem það kostar mig 25.000 kr. Að svara ákveðnum númerum.
Fyrir tilstuðlan vingjarnlegar ráðlegginga, get ég nú ekki lengur leyft mér að beygja mig eftir krónu sem liggur á götunni, þar sem það liggur eflaust kolóður kynferðisglæpamaður undir bílnum og bíður þess að geta gripið í fæturna á mér og dregið mig til sín og nauðgað mér.

Ef þú sendir ekki þennan tölvupóst til amk 144.000 einstaklinga á næstu 70 mínútum, þá mun risavaxin dúfa með svæsin niðurgang lenda á höfðinu á þér kl 17 nú í dag og flær úr 12 mongólskum kamedýrum munu skríða inn í bakið á þér og orsaka að rassinn á þér verður allur kafloðinn.


Og svo langar mig bara líka að deila því með ykkur að Suðuramerískur vísindastúdent sem ég þekki hefur eftir langar og strangar rannsóknir uppgötvað að aðeins einstaklingar með lága greindarvísitölu, sem stunda lítið kynlíf eru manneskjurnar sem alltaf lesa alla tölvupósta með höndina á músinni.

Lifið svo innilega heil.

Ástarkveðjur 

Loksins, loksins...........

Koma myndir frá deginum stóraSmile

20080819153346_0

Þarna bíður bóndinn spenntur eftir spúsu sinni og honum til halds og trausts er bróðir hans Pétur.

20080819153401_1

Ég ætla að ganga inn kirkjugólfið........að sjálfsögðu leiddi pabbi mig inn.

20080819153432_3

Heilt kvennahandboltalið framtíðarinnar gekk í humátt á eftir mér.

28fe378b-a2e0-47b2-972f-023426a9c667_ms

Sest við hlið föður míns.

eeceb379-6ca6-4481-b921-c0e330a054df_ms

Hefst þá vígslan.

c0b403e0-8cd0-4fe8-8e77-1b4d13ca74cc_ms

Hjónabandið innsiglað með heitum kossi.

f4847246-5529-4bd7-a74c-8b7db80888b8_ms

Alveg sjóðheitum.

20080819153655_12

Gleðin alveg að fara með okkur.

3225efce-5d42-4e4a-af25-46bb9bdc1ae8_ms

Jey!!!!!

7432ac94-e682-4df1-8027-831eb2f515f8_ms

Og veislugestum fannst við ekki eiga nóg af börnum.......

20080819153902_0

Og drituðu yfir okkur heilum hrísgrjónaakri....

20080819153727_14

Fallegustu dætur í heimi geymi.

20080819153950_3

Frúin að fara á límingunum......

Veislumyndir á morgunSmile 

Love is in the air.......og ég ætla að fleygja mér í hálftíma.

 


Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband