Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Talandi um leiðbeiningar...........

p001

Hvað er málið með þetta??????? Var einhver að prufa að gera þetta í alvörunni??????? Eða dettur mörgum í hug þegar þeir sjá skrúfjárnssett, jæja best að stinga þessu á ákveðin stað á líkama mínum.......???????? Nei ég bara svona spyr LoL


Við erum aldrei ein, þó lífið virðist stundum vonlaust.

15a14

Það hefur samt ekki örlað á vonleysi hjá mér í mjög mörg ár núna......eða ekkert síðan ég skrúfaði tappann á flöskuna og sagði skilið við vin minn Bakkus fyrir fullt og allt Smile

Já lífið er ljúft og það er frábært að eiga svona góðan ferðafélaga eins og Jesús sem fylgir manni hvert fótmál og ber mann yfir grýttustu leiðirnar Smile

Í dag ætla ég að eiga eins góðan dag og mér er unnt og gefa Guði áhyggjur mínar, sjálfselsku, hroka og eigingirni........Það reynist mér vel að biðja hann að losa mig við brestina og fylla mig af kostum í staðinn. Glorý, Glorý og megi þessi dagur verða ykkur öllum einstaklega ánægjulegur í Jesú nafni Smile


Góða nótt og kama sutra.

878

Ákvað að setja inn eina mynd af okkur hjónum, sem tekin var á sjálvirkri myndavél á föstudagskvöldið fyrir viku. Við vorum svo alsæl eftir tímann hjá kynlífsráðgjafanum, sem ráðlagði okkur að kaupa okkur hafsjó af fróðleik og ég keypti þessa líka fínu skruddu. Svo var cameran sett í gang og allt gert tilbúið fyrir ástarleiki kvöldsins. Smile....klikk.....og eitthvað er spúsinn minn samt furðulegur á svip á þessari mynd. Annaðhvort er hann svona spenntur eða hálkvíðinn??? Veit ekki...hmmmm???????

Góða nótt elskurnar, veljið ykkur fínt lesefni fyrir nóttina, það er ekkert jafn notó og að skríða upp í með bók og svo er það plús ef maður er með svona flottann herramann með í bóliLoL


Hér er einn góður fyrir Eirík bróðir, Helgu systir og alla 90's

Ég man samt eftir mörgu þarna......endilega að kommenta ef þið finnið ykkur í þessu.

 

Þú ert 90´s kid ef þú:

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

Þú áttir tölvugæludýr

...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma..

-jiiii hvað þetta voru góðir tímar..


Mér finnst mjög mikilvægt að fylgjast með hvað

unglingarnir mínir eru að gera á netinu. Þetta gæti átt sér stað í raunveruleikanum.

OjSick

3495_chat


Önnur játning.

Þessi leikari er í svo miklu uppáhaldi hjá mér að hann er bæði nr 1 og 2 og jú....3 líka.

Og mér finnst hann fallegri en Brad pitt, I love himLoL 


mbl.is Gary Oldman er „svalur pabbi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, það held ég nú.

21529945_l

Er það ekki bara málið??????

ég segi eins og seiðkarlinn í Shrek 3. Hvað með knús?????

Elskið hvort annað og byrjið í dag. Á morgun gæti það orðið of seint.


Hræðilegar fréttir

Hvað er að gerast í þessari borg????? Hjartanlegar samúðarkveðjur til fjölsk mannsins sem lést, ég hugsa með ótta í hjarta til framtíðar barna minna, heimur versnandi fer. Það vantar bænaher....segi ekki annað.
mbl.is Maðurinn sem varð fyrir skotárás í Reykjavík er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Önnur játning

Ég hef alltaf verið hrædd að fara í sturtu þegar ég er ein í húsinu eða þegar allir eru farnir að sofa.

Ég horfði nefnilega á svo dásamlega ógeðslega og ógnvekjandi mynd þegar ég var krakki sem hafði þessi furðulegu áhrif á mig LoL

smá hint.

psycho

PSYCHO.

hVER VILL EKKI ENDILEGA EIGNAST SVONA STURTUHENGI??????


Horfði á tvær yndislegar myndir með elstu börnunum í gærkveldi

Smilevar þá búin að hafa kósý kvöld yfir íslenska simpson með yngri dætrunum, með nammi og öllu tilheyrandi......vaknaði svo í morgun, tróð mér í gegnum draslið og lagðist upp í sófa að horfa á barnaefnið með litlu dætrunum. Nú verður svo tekið á því....skúra, skrúbba og bóna á meðan kallinn fer í bíltúr með þær yngstu. Þarf að hafa hraðar hendur því ég þarf að leiða fund í leynifélaginu kl 14:00 Ég fékk að heyra það um daginn, sem ég tel mikinn sannleika og það er það að mesta rán sem hægt er að fremja er að ræna fólk hugarró, Það gerði ég í mörg ár en hef nú gert upp líf mitt að mestu leiti Halo Það er samt mín skoðun að alltaf má gera gott betur og ég stefni ótrauð áfram að framför en alls ekki að fullkomnun. Hvað dagurinn ber svo í skauti sér er óráðinn og spennandi gáta Smile ekki vildi ég vera könguló, já könguló, já könguló og þurfa að reima á mig 8 skó því tveir eru mér meira en nóg. Lífið gæti verið verra veistu bara hvað það gæti verið slæmt, stundum förum við í fýlu og þá er gott að hugsa um hvað við erum heppin.......Þetta lag af söngvaborg raulum við dætur mínar oft saman, doldið flottur texti Cool 

882442878_41271558df_o

Svo er bara að vona að hann hangi þurr.....Rauðka er svo oft með játningar inn á sínu bloggi og ég ákvað að prufa líka.

Játning: Ég elska froska allavegana froska, ég átti fjóra í búri. 3. albínóa og 1 körtu, núna eru albínóarnir allir dauðir og hef ég grun um að kartan eigi einhvern þátt í því Devil 1 froskur er jarðaður austur á Eyrarbakka en hún bar nafnið Hildur Vala, 2 eru enn í frysti og bíða þess að verða jarðaðir á sama stað en þeir hétu Kermit og svínka. Kartan lifir þunglyndislífi á bak við dæluna sína og nú lítur búrið alltaf út fyrir að vera tómt. Henni vantar örugglega félaga af sama kyni.

Kem með fleiri svona játningar seinna.

Eigið öll ofurnæs dag, það ætla ég að gera. Knús. Over and out.


Næsta síða »

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband