Jæja. Þá er mín búin í aðgerðinni...........

og gekk barasta prýðilega. Verst dagurinn er þó í dag og ég gat varla sest upp í rúminu en það hafðist á endanum. En þetta getur náttúrlega bara lagast er það ekki???????

Fór í svæfingu og þoli það bara ágætlega miðað við þann sjúkdóm sem ég berst við............en röflaði einhver ósköp í lækninum þegar ég vaknaði.......kannski var ég á trúnó????? Hmmmm????? Veit ekki. En Læknirinn talaði um að það hafi verið erfitt að láta mig anda þegar þau voru að vekja mig upp úr svæfingunni og þau hafi þurft að hrista mig til og kalla hátt.....og þá loksins........

Játning: eftir allan þennan tíma, ég reyki......já veit.....sprakk á limminu fyrir nokkrum mánuðum.......og elska núna bloggið hennar Jenný....he he he.....en þegar ég vaknaði bað ég strax um að fá að fara niður að reykja.....og þegar ég mátti það ekki þá bað ég um snúð.....he he he......enda búin að fasta á öllu frá því á miðnætti.

Ég er núna á bernskuslóðum mínum austur á Eyrarbakka í ofur góðu yfirlæti.....BARA GOTT.......og svoleiðis dekstrað við mann fram og til baka............ekkert smá notó.

Bóndi minn er í borg óttans með dæturnar og er grasekkill.......og stendur sig ofur vel í því hlutverki.

En jæja nóg í bili. Er að spá í að fara að hvíla mig og koma með blogg í kvöld.

Þangað til eigið góðan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ skvís

Gott að vel gekk,mundu bara að fara vel með þig.

Kveðja Elín Birna..

Elín Birna (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 17:22

2 identicon

Góðan bata

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 20:00

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mundu að slaka á, leyfa líkamanum að hvílast Ella mín.  Hitt getur beðið.  Góðan bata.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.3.2008 kl. 21:06

4 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Hey you sexy babe   gott að allt gekk vel Sprellan mín.

Gaman að sjá þig með lífsmarki hér á blogginu aftur.  Ég var farin að gefa upp alla von... nei segi svona.

Knús á Bakkann og í hálsakotið þitt

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 6.3.2008 kl. 22:19

5 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Gott að vel gekk....máttir þú  fara í hégómaaðgerð án þess að hætta að reykja???

Rúna Guðfinnsdóttir, 6.3.2008 kl. 22:26

6 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Hvildu þig vel.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 6.3.2008 kl. 22:37

7 Smámynd: Helga Nanna Guðmundsdóttir

flott að heyra, hlakka til að sjá dæmið..

Helga Nanna Guðmundsdóttir, 6.3.2008 kl. 23:20

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gangi þér vel og batakveðjur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.3.2008 kl. 07:58

9 identicon

Sæl!

Gott að þér gengur vel. Láttu þér batna fljótt og hafðu bloggsamband við þá fjölmörgu sem hafa ánægju af að fylgjast með bloggi þínu.

Kær kveðjaq til grasekkjumannsins og allra hinna í fjölskyldunni.

Runel

runel (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 09:42

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

GOtt að heyra að allt gekk vel, er mamma að dekra við stelpuna sína?? vona að þér batni fljótt og vel. kveðja  

Ásdís Sigurðardóttir, 7.3.2008 kl. 22:39

11 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Góðan bata Elín mín bestu kveðjur á bakkan kv Eyrún.

Eyrún Gísladóttir, 8.3.2008 kl. 21:42

12 Smámynd: Helga Nanna Guðmundsdóttir

hvernig er þetta með þig...hefurðu engan tíma til að koma með smá blogg af bakkanum? ...en finnst þér ekki gott að vera hjá mömmu...ég skrapp til mömmu seinnipartinn í gær og var að koma heim núna rétt undir miðnætti, nei þetta eldist ekki af manni held ég

Helga Nanna Guðmundsdóttir, 8.3.2008 kl. 23:40

13 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Mundu að borða hollan og fjölbreyttan mat og taka nóg af bætiefnum, allrabest er að taka inn Noni að staðaldri svo ég tala nú ekki um eftir veikindi, en Guð geymi þig og blessi

Guðrún Sæmundsdóttir, 10.3.2008 kl. 21:36

14 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Góðan bata.

Sigríður Sigurðardóttir, 11.3.2008 kl. 22:21

15 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Búin að vera í algjörri afslöppun og langar núna sjúklega ap dekúreita heimilið mitt, Takk fyrir falleg orð og fallegar kveðjur, Ég er öll að koma til

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 14.3.2008 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband