Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Er að stíga upp úr............

flensu DAUÐANS!!!!!!! Þvílíkt ógeð, hósti, hor, hiti og beinverkir.........En þetta er vonandi búið.

Ég nenni ekki að svara öllum þeim kommentum sem ég fékk við síðustu færslu. Eina sem ég vil segja er, það er eitt að mótmæla og annað að kunna að mótmæla.......ég er komin með ógeð.

Við erum svo mikil smáborgaraþjóð, og svo ótrúlega áhrifagjörn og ósjálfstæð......kaupum allt á pakkatilboðum, fermingar á pakkatilboðum, jarðafarir á pakkatilboðum, brúðkaup á pakkatilboðum, húsgögn og heimili á pakkatilboðum. Allir með sama stílistann......þetta er í tísku í dag og hitt á morgunn. Höfum við svo í alvörunni bara efni á þessu öllu saman. Við þurfum alltaf að borga fyrir lífsgæðakapphlaupið fyrr en seinna.....það kemur alltaf að skuldadögum burtséð frá of háu bensínverði eður ei. Við eigum met í þunglyndi og pilluáti á meðan samlandar okkar Danir eiga met í að vera glaðasta þjóð í heimi, af hverju????? Maður spyr sig. Og þegar maður spyr fær maður stundum svör líka. Það sem ég hef komist að er þetta: Lífsgæðakapphlaupið miklu miklu minna, allir ánægðir með sín hýbýli, allir á reiðhjólum, borga himinháa skatta en í staðinn kemur, frý heilsugæsla og háskóli og margt fleira. Nú er sumarið að koma og ég er mikið að pæla í að græja fjölsk upp á hjólum, mála einhver gömul húsgögn og gera þau eins og ný og pakka eitthvað að leikföngum, svo að hálfu ári liðnu þegar ég tek þau fram, verða þau sem ný. Kannski að ég fái mér líka brauðvél. Ég er líka að selja list og fleira og ætla mér helst ekki að taka þátt í kreppunni fyrirfram. Nú er bara að vera lige glad er það ekki annars????????

 

                            20080427_1533

Fallega elsta dóttir mín, lét ferma sig síðastliðinn Sunnudag.

                            20080427_1567

 Fallegust í heimi geimi........................

                          20080427_1588

Greiðslan sú allra flottasta.......TAKK EYGLÓInLove

                         20080427_1610

Gengið til altaris á fallegum skóm.........

                        20080427_1618

Sæl og ánægð með daginn sinn milli ömmu og afa.

                       20080427_1630

Við æskuvinkonurnar vorum allar að ferma sama dag. Elín Birna, Sædís Ósk og ég Elín Katrín.

                       20080427_1530

Jóhannes Gísli ,sonur Sædísar.

                     20080427_1624

Arnar Þór sonur ,sonur Elínar Birnu.

                     20080427_1639

þessi sæti strákur er frændi okkar og heitir Sindri Már Unnarsson og fermdist líka sama dag.

                   20080427_1635

Sætar systur með Helgu Þórey frænku sinni.

                  20080427_1634

Þessar tvær eru strax farnar að ræða sína fermingu og hvernig hún eigi að vera, enda ekki ráð nema í tíma sé tekið......önnur eftir 5 ár og hin eftir 7 ár LoL

Góða nótt elskurnar og njótið 1 maí á morgunn.


Við erum illa upp alinn þjóð og..............

kennum börnunum okkar, virðingarleysi, þröngsýni og dónaskap. Hvar eru mamma og pabbi?????? Kannski að keyra vörubíl????? Bölvað væl og vein í öllum. Krakkar mínir......farið heim að læra......stóru prófin framundan....skóli á mánudaginn. Ég ætlaði mér alls ekki að blogga neitt um þessa frétt.......vildi hvorki með né á móti, þetta er allt svo óvitsmunalegt og bjánalega hallærislegt.

 

Farin að sinna mínum dætrum, áður en þær hefja mótmæli.


mbl.is Ungmenni tefja umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ætlar þú að verða vina, þegar þú ert orðin stór..........................

allir spyrja einum rómi.....................................................

 

             blisommamma

Við erum fyrirmyndin................Þetta er sem betur fer ekki teikning eftir mínar dæturTounge

Frekar sorglegt samt.............

 

Linda mín ætlar að verða bóndakona og eiga heima í sveit og alltaf að borða hrossakjöt og plokkfisk. Hún ætlar að eiga mann og börn, 3 börn......Það er nauðsynlegt að eiga börn ef hún skyldi sofa yfir sig......því það verður einhver að mjólka kýrnarLoL

 

Anita Ögn ætlar að verða listakona og selja listina sína í gallerí.......hún ætlar að verða mjög rík. Hún ætlar líka að starfa sem gæludýralögga og bjarga dýrum sem farið er illa með og handsama gerendurnar.

 

Carmen veit ekkert hvað hún ætlar að verða,enda bara 3 ára..........En frek er hún og uppátækjasöm. Kannski verður hún bara mótmælandi.....það er að verða að starfsgrein í dag.....það er móðins eins og amma myndi segjaLoL

 

Farin að koma dætrunum í ró.

  Góða nótt á liðið.......og takk fyrir öll ykkar komment.

 

Runólfur minn....mér þykir alltaf svo vænt um kommentin þínSmile

 

líka hin kommentin........En sérlega gaman þegar tengdapabbi kvittarHeart


Og hvað með það???????

Það er alveg satt......Þetta er mjög hommalegt myndband. Ég á fullt af samkynhneigðum vinum og allir dásamlegir......mismikið reyndar eins og bara gagnkynhneigðu vinir mínir. En myndbandið er hommalegt og það fer ekki á milli mála. Ef ég myndi gera myndband....yrði það þá streitlegra en streitlegt????? Ég bara spyr. Af hverju þurfa alltaf allir að hafa skoðun á öllu????
mbl.is „Hommalegra en hommalegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk Kjötsúpa.............

Kraumar í pottinum. Bóndinn er að elda, stelpurnar á leið í bað.....fyrst sú elsta, síðan miðjan og loks ég og örverpið. Allir pakksaddir af súpunni þegar farið verður í rúmið, Við biðjum bænirnar, ég og dæturnar og kossar og knús inn í nóttina, nokkur köll ;Mamma má ég fá vatn??, má ég, má ég......; Loks sofna þær hver af annari og mamman ræður hvort hún heldur áfram að skrifa verkefnin sín fyrir leynifundina eða fer niður í vinnustofu að mála........LÚXUSVANDAMÁL!!!!!!! Kannski eitthvað spennó í TV????? Hver veit????? Bóndinn ætlar að bera út fermingarboðskort og fara í Apótekið. Er hægt að hafa það mikið betra???????

 

 Knús á ykkur öll inn í kvöldið og nóttina..............Njótið þess sem lífið bíður upp á hverja mínútuHeart

 

                                http://youtube.com/watch?v=5MBorFLA9nQ

 

 Eitt ofur fallegt lag með Eagles........Desperado til bónda míns, með þökk fyrir kjötsúpuna og lífiðInLove


Emil Hvað????????

Ég á dóttir sem slær Emil í Kattholti út hvað varðar uppátæki og er hún samt aðeins tæplega 3 ára gömul. Ég ákvað að vera svoldið iðinn í dag og taka í gegn hjá mér.........Nei!!!!! Það er ekki auðvelt með þessa skottu í kringum sig.

Dæmi: Ég setti í uppþvottavél........á meðan náði hún sér í penna og krassaði líkamshár á allan líkamann.......Stolt kom hún til mín og sýndi mér hvað hún var fín og ég dæsti og lét Bubba byggir í tækið, ákveðin í að klára það sem ég var byrjuð á.

Eftir svolitla stund og alltof mikla þögn, tékkaði ég á hvort hún væri ekki örugglega fyrir framan T.V......Kom mér svo sem ekki á óvart að finna hana ekki þar........Sá hana í herbergi næst yngstu dótturinnar og komst að því að það er sama hvar og hversu hátt í skápum pennarnir eru, hún er snillingur í að finna þá. Veggurinn í herberginu skartaði þessum líka fína kalli.....Brosandi glöð og ánægð leit hún á mig og sagði ; Er hann ekki fínn??? Brosið bræddi mig og þegjandi og hljóða laust fór ég að reyna að ná kallinum af veggnum........Ég mæli með Súper 10.

Þá var byrjað að sópa gólfin.......og nú var það fröken Lína Langsokkur sem hélt örverpinu félagsskap..............Ég veit að það rennur ekkert vatn inn í stofu, og ég hleyp inn á bað.......sú stutta sat á vaskinum með báða fætur ofan í, löðrandi í sápu í þessu líka fína fótabaði.

Pabbinn kom svo heim úr vinnunni og þau tvö fóru á rúntinn að versla afmælisgjöf handa miðjunni, sem á 9 ára afmæli á morgunn. Miðjan er með ADHD á háu stigi og við því tekur hún lyf.......En mamman er líka með athyglisbrest og er á sömu lyfjum, og það kemur nú ekki oft fyrir en í morgunn steingleymdi mamman að gefa henni lyfin og fattaði það ekki fyrr en hún kom heim úr skólanum. Trúið mér, það er verulega augljóst þegar hún er ekki á lyfjunum sínum.

Hún fór út að leika við fullt af stelpum úr hennar bekk og það gladdi mig ótrúlega mikið þar sem það er mjög sjaldgæft að hún sé með öðrum krökkum.......á frekar erfitt félagslega þessi ást.

Sú næstyngsta fór niður að leika við læknissoninn.

Eftir dulitla stund kom sú næstyngsta grátandi upp til að segja mér að miðjan hefði hent stígvélunum hennar í ruslalúguna, en þau voru geymd fram á gangi. Hvað gerði mamman????? Jú hljóp út kallaði á miðjuna og spurði hana út í þetta með pirruðum hækkandi rómi. Miðjan svaraði ; þau eru ekki í ruslinu, heldur niðri í þvottahúsi, ég faldi þau þar og Þetta var bara djók; Eftir að hafa útskýrt fyrir henni orsök og afleiðingar af svona stríðni.

Labbaði þreytt mamma upp í sína íbúð og fór að blogga..........Heimilið verður klárað í kvöld á meðan systurnar sofa........Svo er afmælissöngur í fyrramálið, pakkar og læti.........og er miðjan að fara yfir um af spennu....Henni hlakkar svo til.

Svona var dagurinn minn, svona nokkurn veginn........

                                20080410_0999aa

               Örverpið, Carmen Helga ( Emilía í Kattholti)

                                20080415_1109a

              Sú næstyngsta, Linda Rut ( mikil áhugamanneskja um mat)

                               20080415_1113anitas

               Miðjan, Anita Ögn ( Barnið með snilli kvilla)

         Játning: Þegar ég verð gömul, ætla ég alltaf að hafa fínt, eiga kjölturakka með tíkó og fá börnin mín, tengdabörn og barnabörn í heimsókn um helgar og rifja upp gamla tímaInLove

  Ég er farin að setja í þvottavél..............Knús á ykkur öll sem lesið og eruð svo elskuleg að kommenta á kerlinguna.


Tónlistarblogg í dag..............................................

...................................

Ég á alveg ótrúlega mikið af uppáhaldslögum..............og langar að deila þeirri hlið á mér til ykkar.

 

Nick Cave og PJ harvey........með lagið  Henry Lee

Æðislegt lag sem býr til gæsahúð á minni og myndbandið býr til fjaðrir sem gera mig hálf fleygaKissing

Kynþokkafullt lag, kynþokkafullt myndband kynþokkafullur Nick Cave.......PJ Harvey flott líka.

Hlustið, horfið og njótið.

 

 http://youtube.com/watch?v=uHdNCHomHlU

 

Annað lag með Nick Cave, sem ég elska er Mercy Seat. Textinn er svo brjálæðislega saminn. Ofur töff og Nick Cave er karlmenni með kynþokka og sómir sér vel í öllum sínum myndböndum.

Njótið.

 

 http://youtube.com/watch?v=L6RML0YHOm8

 

Ég er mikið Cure fan og áður en ég ákvað að breyta færslunni minni í tónlistarblogg, ætlaði ég að leifa ykkur að hlusta á þetta lag sem að fær mig næstum því til að dansa. Og ég tek það fram að ég dansa ekki, nema þá við börnin mín og þá bara svona kjánadansTounge Eitt af uppáhaldslögum mínum með einni af uppáhaldshljómsveitum mínum.................

Gjörið þið svo vel......Killing in a Arab

 

 http://youtube.com/watch?v=BD1uGPkxQfA

 

Eitt enn með snillunum í The Cure............Þegar ég heyri þetta syng ég hátt með, og það geri ég oftar og betur en að dansaLoL

Þetta lag vekur hjá mér eitt stærsta nostalgíu kast ever.

 Lullaby

 

http://youtube.com/watch?v=oOHQs405XcU

 

Hver man svo ekki eftir þessum snillingum???? Játning: Þegar ég var 18 ára var ég dramadrottning dauðans.......í sko orðsins fyllstu. Ég ákvað jarðaförina mína í huganum í hverjum mánuði án þess að mér liði eitthvað illa. Þetta var eitt af þeim lögum sem ég vildi láta spila yfir mér dauðriLoL

 

Dömur mínar og herrar Metallica með Fade to black.

 

http://youtube.com/watch?v=Q7C90sLh5Ok

 

Önnur melodía frá þessum árum með sömu grúppu............Unaðshrollur.

The One

 

 http://youtube.com/watch?v=JwW9L_qzqp8

 

Aðrir og enn betri menn sem hömruðu járnið voru Iron Maiden........Þvílíkur og annar eins söngvari, þvílíkir tónlistamenn. Þetta lag finnst mér eiga heima í flottri Rokk óperu. Hlustið á textann.

Rime of the Ancient Mariner.

 

 http://youtube.com/watch?v=P9MFKhahthQ&feature=related

 

Smá Pollíönnulag til að koma sér í gott skap, mæli með því undir stýri.

Violent Femmes = Blister in the sun.

 

http://youtube.com/watch?v=Ra8VTlXVqUQ

 

þetta lag fær mig til að standa upp úr stólnum og gera eitthvað annað en að safna hamborgararassi........er samt ekkert rosa Clash fan og tel þá rétt svo vera með tærnar þar sem aðrar punk grúppur eru með hælanna.

Should I stay or should i go ??????

 

http://youtube.com/watch?v=trolcS3V7dY

 

Þetta finnst mér flottur pönkariInLove  Betra er autt en illa skipað........Hefði átt að halda sig við grúppuna en ekki Nancý..............Einn af þeim sem fór ungur yfir móðuna miklu og af völdum eiturlyfja.

 

My Way í flutningi Sex Pistols.

 http://youtube.com/watch?v=DXCr1M7-Nx4

 

Ég er langt frá því búinn með tónlistarbloggið, en verð að loka þessu í bili ( Held bara áfram seinna)

Lokalagið er þetta...........Sined O'Connor skipaði stóran sess í lífi mínu í kringum 16-20 ára aldurinn og þetta lag var í miklu uppáhaldi.

Last day of our Acquaintance.

 

 http://youtube.com/watch?v=jLGobWuiYuc

 

Ég skora á alla bloggvini mína sem og aðra sem lesa steypuna mína að útbúa eitt til tvö svona blogg. Hlakka til að heyra.

Farinn að hlusta meira og gera eitthvað skemmtileg, eitthvað annað en að bölva kulda og vetri.

Og þið sem lesið, takk fyrir kommentin til mín.......

 

 

 

 

 

 

 


Einn góður í boði nöfnu minnar........................

hennar Elínar BirnuLoL


Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim 'misstu 5 kg á 5 dögum'
pakkann.

Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur
íturvaxin 19 ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm. Um hálsinn á henni
hangir skilti sem á stendur 'Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig'.

Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni. Eftir
nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp. Sama
stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist
í hvert skipti. Á fimmta degi vigtar félaginn sig, og viti menn, hann
hefur misst 5 kg.



Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og
pantar hjá þeim 'misstu 10kg á 5 dögum' pakkann.

Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú
fallegasta og kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð. Hún er
eingöngu klædd í Reebok hlaupaskó. Um hálsinn á henni hangir skilti sem
á stendur 'Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig'.

Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni. Hún er auðvitað í
fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki. Næstu fjóra
daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form. Á
fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst
10 kg.



Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar 'misstu 25
kg á 7 dögum' pakkann. 'Ertu alveg viss?'spyr sölumaðurinn ' Þetta er
erfiðasta prógrammið okkar'

'Ekki spurning' svarar félaginn, 'mér hefur ekki liðið svona vel í mörg
ár'.



Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór,
helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm. Um
hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur 'Ef ég næ þér, er rassinn á
þér MINN!'



Félaginn missti 32 kg í þeirri viku

 

Spurning að prufa þennan??????????????'

 

Sjáumst seinna.


Ég bara varð að stela.................................................

þessum frábæra fróðleik af síðunni hennar Guðrúnar Helgu................Sorrý Guðrún mínHalo

Landafræði kynjanna:


Landfræði konunnar:


Þegar konan er á aldrinum 18-21 árs er hún eins og Afríka eða Ástralía. 
Hún hefur verið uppgvötuð að hálfu leyti, en er annars villt og skartar náttúrulegri fegurð. 
-Á frjósömustu svæðunum er mikill gróðurvöxtur. 

Þegar konan er á aldrinum 21-30 ára er hún eins og Bandaríkin eða Japan. 
Hún hefur verið uppgötvuð að fullu, er mjög þróðuð og er opin fyrir öllum viðskiptum 
-Og þá sérstaklega þeim sem snerta bíla eða peninga. 

Á aldrinum 30-35 er konan eins og Indland eða Spánn. 
-Hún er heit og afslöppuð og þykir mikið til eigin fegurðar koma. 

Þegar konan er á aldrinum 35-40 ára er hún eins og Frakkland eða Argentína. 
-Hún gæti hafa farið illa út úr styrjöldum, en er samt nokkuð hlýr og eftrisóknarverður heimskóknarkostur. 

Á aldrinum 40-50 er konan eins og Júgóslavía eða Írak. 
Hún tapaði stríðinu og fær ekki frið fyrir mistökum sem hún gerði á árum áður. 
-Nauðsynlegt er að ráðast í viðamikla endur uppbyggingu. 

Á aldrinum 50-60 ára er konan eins og Rússland eða Kanada. 
-Hún er mikil um sig, þögul og landamærin eru nánast óvarin, en hið kalda loftslag heldur fólki fjarri. 

Þegar konan er á aldrinum 60-70 ára er hún eins og England eða Mongólía. 
-Hún skartar stórkostlegri og sigursælli fortíð en engri framtíð. 

Eftir sjötugsaldurinn verður konan eins og Albanía eða Afganistan. 
-Allir vita hvar hún er en enginn vill fara þangað. 

Landfræði karlsmannsins: 

Þegar karlmaðurinn er á aldrinum 15-70 ára er hann eins og Zimbabwe 
-Honum er stjórnað af drjóla

Takk þið öll yndislegu, fyrir kommentin ykkar.

       http://youtube.com/watch?v=9Le_oJAyAnQ

Smá nostalgía í gangi.......................Ég hlustaði sjúklega mikið á Patty Smith á mínum yngri árum, og uppreisnin í þessum texta átti vel við mig þá...........Ég elska þessa konuHeart

Góða nótt, sofið rótt í alla nótt með hettusóttSmile


Getur maður dáið úr leti????????

Þá er ég örugglega í hættu Devil Þetta er dagur 3 sem á að fara í tiltekt og nytsamlega hluti........Er samt BARA búin að setja uppþvottavélina í gang..........Svo nú er bara að duga eða drepast.......ekki satt?????

Ég ætlaði að minnast aðeins á unga fólkið í umferðinni þar sem ég steingleymdi því í síðustu færslu.

Ég er líka hrædd við 17 ára unglinga með bílpróf. Ég er þó ekki að tala um alla unglinga, ekki heldur allt gamalt fólk og enn síður alla útlendinga. Það sem ég á við er fólkið sem prýðir toppsætið ásamt Bubba. Sem sagt gamalt fólk sem keyrir á 20, notar ekki speglanna og er síbremsandi. Útlendingar sem sjá ekki yfir stýrið, sem versluðu ökuskírteinið sitt á svarta markaði í sínu heimalandi og kunna ekki Íslenskar umferðareglur.Unglinga sem keyra yfir löglegan hámarkshraða, kunn ekki að setja í þvottavél en halda samt sem áður að þeir valdi ökutækinu sem þeir keyra. Þannig var það nú. Ég hef grun um að Rannveig vinkona mín sé samt að meina migWhistling Ég hef samt stórlagast Rannveig mín....ég meina, ég bý nú í borg óttansLoL

Ég tók Strumpa próf og ég er dadaradada...........

                                     Painter_Smurf

 Sniðugt.....Ekki satt??????

                 Smá myndasyrpa í lokin

                    IMG_4523

Þetta er mynd sem ég málaði fyrir jólin og ber titilinn Fílahjörð í Namibíu.

                       IMG_4527

Þegar maður missir tönn, kemur tannálfurinn færandi hendi.

                       IMG_4531

Ég á litla systir sem er mjög iðinn við að kenna börnunum mínum allskyns ósiði eins og að gretta sig.

                      IMG_4581

Á öskudaginn breyttist Linda Rut í Norn

                     IMG_4583

Anita Ögn í vampíru

                     IMG_4586

og Carmen Helga í býflugu.

                   IMG_4601

Finnst ykkur þær ekki líkar???? Systurnar Marín, Linda Rut og Maríanna.

                   IMG_4614

Svo erum við Bóndinn minn svo heppin að eiga svona Plat ömmu og afa strák sem heitir Adam Örn og er BARA YNDISLEGUR InLove

Eigið góða rest af degi elskurnar.......Mín farin að gera eitthvað nytsamlegt.

                          


Næsta síða »

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband