Best að blogga og vona að allir séu ekki búnir að gleyma mér....

Ég er samt alveg snauð af hugmyndum og er bara alltaf að skólast og mammast... Nóg að gera bara. Hef það fínt... Bóndinn reyndar atvinnulaus sökum kreppunar....Annars ákvað ég um daginn að gera orðið Kreppa að bannorði á mínu heimili... Ég verð bara þunglynd á þessu krepputali. Þetta útrásarvíkingapakk.... er kannski búið að stela af okkur vinnu, og umfram aur en ég leifi þessu liði ekki að stela frá mér góða skapinu. Svo mikið er víst. Ég baka bara oftar brauð og lifi sparlega og það er bara nokkuð gaman á köflum :) Ég hef samt áhyggjur af hvað rakvélablöðin hafa hækkað í verði, ég er hætt að geta verslað á mig nærbrækur... 

                             En við fengum okkur Finnskt gufubað og þessi mynd var tekin af mér þegar ég fór aðeins út að fá mér ferskt loft.    Fleiri fréttir síðar. Lifið heil og ekki láta stela af ykkur gleðinni :)                                                                                    

n575318667_1490349_7109 (1)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ahahahaha - engin kloffátækt þarna ;) - það væri hægt að halda hita á heilu bæjarfélagi með þessum brúsk (aumingja konan)

sammála með þetta kreppuvesen - óþarfi að fara að taka það inn á sig eins og skemmt epli, reyndar er ég alveg fáránlega á skjön alltaf við allt - er búin að vera með kaupæði síðan kreppan skall á enda bara biluð með meiru ;)

Martha Elena Laxdal (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 03:54

2 Smámynd: Einar Indriðason

Þú ert svakaleg!

(og innlitskvitt)

Einar Indriðason, 18.2.2009 kl. 08:27

3 identicon

jiiiii, ég hélt fyrst að þetta væri mynd af mér, margt líkt með skyldum greinilega Rugludallur!!  En það er gaman að sjá líf á þessari síðu elskan, vertu dugleg að blogga

ástarkveðjur frá okkur á Bakkanum

Sandra Dís (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 09:00

4 identicon

Hæ  Sæta !!!

 Gaman að lesa bloggið þitt...  knús í hús  haha

Elín Birna (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 09:51

5 identicon

Sæl vinan!

Það er gaman að sjá eitthvað frá þér aftur. Það gagnar lítið að loka sig inni þó kreppa gangi yfir. Því meiri þörf á að hafa samband við vini og ættingja, þó ekki sé nema í gegn um bloggið. Myndin er stórgóð.

Minnir mig á vísuna:

Þeir hafa ekki í gegnum hárið manns

hökta jaga og saga,

svo fer það allt til andskotans

út um lær og maga.

Fyrirgefðu

Bið kærlega að heilsa öllum.

runel

Runel (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 12:23

6 Smámynd: Aðalsteinn Baldursson

Það er spurning um það mín kæra frænka hvort að við verðum ekki að vera með samskot í fjölskyldunni og kaupa handa þér nokkur blöð. 

Aðalsteinn Baldursson, 19.2.2009 kl. 00:13

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Úff Ella hehehehe  lá við að ég dytti niður af stólnum

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2009 kl. 10:22

8 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 17:36

9 identicon

Vá, ætlarðu ekkert að fara að panta þér tíma í klippingu?  Eða ertu kannski að reyna að koma af stað nýju trendi?  Þetta er svosem mjög heppilegt trend þegar fjárskortur hrjáir þjóðina...

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 11:04

10 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þetta er myndar kona, búsældarleg og hlýleg á myndinni.  En ekki kannski stíllinn hér uppi á Fróni í dag, svo ég vil gjarnan taka þátt í "rakblaðasamskotinu" handa þér, sem hann Aðalsteinn stakk upp á.

Sigríður Sigurðardóttir, 24.2.2009 kl. 08:43

11 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Heil og sæl elín og gaman að sjá nyja færslu frá þer.Tek undir samskotið,þú lætur nú ekki sjá þig svona kona góð.Knús á ykkur öll kæra fjölskylda

Sædís Hafsteinsdóttir, 25.2.2009 kl. 17:19

12 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

hahaha.... Já Martha mín, það er sko auðvelt að missa sig í kaupæði. Enda langar manni oft mest í eitthvað þegar það er ekki til aur fyrir því. Knús.

Takk Einar minn :)

hahaha.... það er gott að vita að það eru fleiri svona vel hærðir í fjölsk Sandra mín :)

Takk nafna mín :)

Hahahahaha.... Já, við skemmtum okkur mikið yfir þessu ljóði elku Runólfur minn :) Ég og Bjössi :) Og já það er sko satt.... úfff maður mætti sko vera miklu duglegri að vera í sambandi. Ég fer að bæta úr því. Mér þykir voða mikið vænt um ykkur Grétu :)

Ji, Hvað þið eruð almennileg í fjölsk Aðalsteinn minn, Það verður aldeilis munur að láta brúskinn hverfa....úff

hahahaha..... já Ásthildur mín, þetta er hrikalega fyndin mynd og svipurinn á kellu hahahahahah

Takk fyrir kvittið Birna mín. Ég þarf að fara að koma til ykkar á föstudögum, sakna ykkar.

já, segðu Arna mín, heldurðu ekki bara að þetta geti orðið móðins ;) haha

hahaha... Ekki stíllinn hér upp á Fróni :) Það er víst deginum ljósara.... Þýskar konur eiga þetta hins vegar til, að safna svona :) Takk fyrir að taka þátt í samskotinu Sigríður mín.

Og þú líka Sædís mín... hahaha... ef þetta gengur svona vel áfram þetta samskot þá á ég eftir að geta rakað mig undir höndunum líka :)Knús á ykkur líka Sædís mín og takk fyrir öll faðmlögin sem þú ert búin að senda mér.

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 27.2.2009 kl. 18:21

13 Smámynd: Ásta Björk Solis

Gaman ad sja thig aftur,kreppan er lika her og eg virdist eyda meira.T,D.keypti braudvel thvi rafmagnid er svo dyrt ad eg timi ekki ad baka braud i ofninum,keypti djusvel og by til mitt eigid djus er ad byrja a graenmetisgardinum.Jamm kreppa alstadar

Ásta Björk Solis, 2.3.2009 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband