Stressið og taugaveiklunin aðeins að........

líða hjá, enda búin í prófunum og búin að senda alla pakka sem eiga að fara í póst frá mér. Búin að kaupa allar jólagjafir sem allar eru í ódýrari verðhópnum, en samt svo ferlega flottar. Ég bjó til listrænan gjörning úr pökkunum og pakkaði þeim inn í gömul dagblöð, Andrésblöð og notaði föndurefni og fleira sem ég átti og batt svo utanum með snæri....eins bjó ég til merkimiðana sjálf....svaka flott og lýsir vel efnahagsástandi þjóðarinnar og er ódýrt líka....kostar næstum ekki neitt Cool

Ég er búin að ljúka enn einni önninni í skólanum og náði öllu....hæsta einkunnin mín var 10 í listir og menningu Smile og núna 6 des náði ég þeim áfanga að ég er búin að vera laus við gamla félagann minn Bakkus, sem ávallt var mér til ama, í 5 og 1/2 ár Cool Þannig að á edrúgöngu minni hef ég náð 25 einingum í framhaldsskóla ( var ekki með neina einingu fyrir ) Ég er búin að vera með sama manninum lengur en edrúganga mín, ( það er ótrúlegt miðað við mig ) og ég er gift honum líka, ég á fallegt heimili, fínan bíl, ég elda, baka og geri allt sem aðrar konur gera fyrir jól og aðra viðburði. Ég er semsagt þátttakandi í lífinu, og ég hef mínar eigin skoðanir en ekki annarra ( sem segir mér að ég er full af sjálfsvirðingu og sjálfstrausti ) Er hægt að biðja um mikið meira??? Ég held bara ekki.

Ég er sko bara að nefna brot af mínu frábæra lífi, því að það er hellingur meira sem gerir lífið svona dásamlegt.

Ég ætti kannski að nefna 3 hluti á dag sem gerir lífið dásamlegt???

Ok.

1. Ég er edrú, hamingjusöm glöð og frjáls.

2. Ég á fimm yndisleg heilbrigð börn.

3. Ég á yndislegan eiginmann sem elskar mig eins og ég er, með kostum og göllum

 

Upptalningu lokið í dag. Eftir áramót tek ég 20 einingar í skólanum og hlakka bara til þess.

En jæja, best að hella upp á fyrir bóndann sinn og reyna að koma honum á fætur og senda hann eftir fleiri umslögum. Eftir hádegi förum við svo með kirkjunni minni í Heiðmörk að höggva niður jólatré Smile

Það er eitthvað rómó við það InLove

Ég og líf mitt í nokkrum myndum.

Það þarf að smella á myndirnar til að gera þær stærri. 

20081219_439000oioi

Nýjasta myndin af konunni í Álfablokkinni.

 

 

cb3987d8b161427269c

Ég á verðlaunaafhendingu ásamt kærum vini mínum Bon Jovi.

 

db8bb7d8b161025d242

Ég í jólaskapi með voffanum mínum sem er frábær eftirherma og finnst sérstaklega gaman að leika mig, og svo tekur hann Geir Ólafs líka mjög vel.

 

edcb67d8b16101419232

Ég heima hjá Britney vinkonu minni, hún lánaði mér stígvélin. Þarna vorum við á leiðinni á djammið og vorum að flippa á meðan við biðum eftir Paris vinkonu okkar.

 

IMG_0133

Sjálfsmynd sem ég teiknaði og var lokaverkefnið mitt í myndlist þetta árið.

Þarna sit ég á kistu sem ég ætlaði mér að fylla af peningum og fara svo til heitari landa. Ég fór svo í bankann minn, vopnuð kökukefli og ætlaði að ræna hann en þá var bara einhver Björgólfur og vinir hans, búnir að ræna bankann og þegar ég spurði gjaldkerann hvort ég gæti þá ekki bara rænt eitthvert annað útibú eða annan banka, sagði hún mér að það væri búið að ræna alla banka í landinu.....bömmer!!!

Ég er að pæla í að ræna bara þennan Björgólf eða hina dúddana.

 

20080702_3178 00

 

Hringir okkar hjóna, fyrir giftingu. Bóndinn tók þessa mynd og var hún notuð á boðskortin.

 

Copy of 158a17d8b16102f28128

Bóndinn fór til Íraks á fund með Al Queda, svona til að forvitnast aðeins um hvernig maður á að bera sig að í sumarfríi sem hryðjuverkamaður, en á næsta ári munum við fjölsk ferðast í fyrsta skipti sem hryðjuverkamenn og hlakka ég bara til.

 

24f877d8b16142cc0

Bóndinn að horfa á einkadans hjá spúsu sinni, hann er stundum svo feiminn þessi elska og er það annað en hægt er að segja um mig.

 

Segið svo að ég sé ekki búin að lifa viðburðaríkri æfi ;)

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Goðan dag elín mín og innilegar hamingjuóskir með prófin þín,og einnig með þín edrú göngu.Er þetta ekki yndislegt líf að vera edrú með allan þennan krakkahóp,mann sem elskar þig.Hvað meir getur ein kona beðið um.óska ykkur hjónum og börnunum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á nyju ári.kv sædís og fjölskylda

Sædís Hafsteinsdóttir, 20.12.2008 kl. 10:08

2 Smámynd: Einar Indriðason

Nei, sko!  Ég er að skrifa innlitskvitt hérna hjá þér!  Farðu nú að jólast, og þú mátt hengja jólakúlur á þig og þína.  Þú mátt líka sveipa þig í svona rafhlöðuknúinni jólaljósaseríu!

Jóla.. Jólajól... Jóla... Jólajól... Jóla... Jólajól!!!

(lalalalalala) 

Einar Indriðason, 20.12.2008 kl. 12:42

3 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Til hamingju með árangurinn í skólanum. Til hamingju að vera edrú. Ég bjó líka til merkimiðana sjálf.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 20.12.2008 kl. 13:00

4 Smámynd: Aðalsteinn Baldursson

Elsku frænka.

Innilega til hamingju með frábæran árangur, bæði í skólanum og eins í lífinu sjálfu.

Aðalsteinn Baldursson, 21.12.2008 kl. 08:21

5 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Elsku Elín innilega til hamingju með þetta allt saman.  Já það er sko margt sem maður getur verið þakklátur fyrir

Jólaknús á þig og þína frá okkur í sveitinni

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 21.12.2008 kl. 13:01

6 Smámynd: Elísabet Sigmarsdóttir

Sæl,

Mig langar að óska þér innilega til hamingju með þennan stóra áfanga og líka það sem þú mynnist á að þú átt 5 heilbrigð börn . Þú ert mjög heppinn kona enn og aftur til hamingju. 

Elísabet Sigmarsdóttir, 21.12.2008 kl. 18:19

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2008 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband