Fékk þennann sendann frá Elínu Birnu vinkonu.

Smá hlátur fyrir kvöldið.

 

Maður verður að fara varlega í að gleðja aldraða móður sína !!!


Þrír synir afar guðhræddrar móður fóru að heiman til að spreyta sig á
lífinu. Allir áttu þeir miklu láni að fagna og græddu peninga í stórum
fúlgum. Að mörgum árum liðnum hittust þeir og ræddu meðal annars um
gjafirnar sem þeir höfðu sent aldraðri móður sinni.

"Ég reisti henni mömmu myndarlegt hús," sagði sá fyrsti.

"Ég sendi henni eitt stykki Mercedes Benz með bílstjóra," sagði annar.

"Ég gerði enn betur," sagði sá þriðji. "Þið munið hvað mamma hafði mikla
unun af að lesa Biblíuna og að hún er farin að missa sjón.
Þess vegna sendi ég henni stóran, brúnan páfagauk sem kann hana alla
utan að. Það tók tuttugu presta tólf ár að kenna páfagauknum þetta.
Verkefnið kostaði milljón dollara á ári, en það var þess virði.
Mamma þarf ekki annað en að nefna rit, kafla og vers
og þá fer páfagaukurinn með textann."

Skömmu síðar sendi móðirin sonum sínum þakkarbréf.

Til fyrsta sonarins skrifaði hún:
"Kæri sonur! Húsið sem þú byggðir er risastórt.
Ég bý aðeins í einu herbergjanna en þarf að þrífa allt húsið."

Sonur númer tvö fékk eftirfarandi bréf:
"Elskaði sonur! Ég er orðin alltof gömul til að ferðast.
Ég er alltaf heima og nota Bensinn aldrei. Bílstjórinn er óttalegur
dóni."

Þriðja syninum sendi móðirin þessi skilaboð:
"Yndislega afkvæmi! Þú varst eini sonurinn sem gerðir þér grein fyrir
hvernig ætti að gleðja hana móður þína.

Kjúklingurinn var hreinasta hnossgæti

 

Eigið gott kvöld og nótt og ljúfa drauma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

He,he  

Elín Birna (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 19:17

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.9.2007 kl. 19:18

3 Smámynd: Halldór Sigurðsson

hehehe snilld

Halldór Sigurðsson, 22.9.2007 kl. 19:24

4 identicon

Ragga (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 19:30

5 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 20:29

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 23.9.2007 kl. 12:53

7 Smámynd: Benna

LOL

Benna, 23.9.2007 kl. 13:02

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Belly Laugh

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2007 kl. 09:42

9 identicon

Rakst óvænt á þína bloggsíðu, vildi bara kasta á þig kveðju:) Langt síðan að ég hef séð þig :)

Gaman að heyra hvað þið  hafið það gott þið fjölskyldan, til hamingju með nýju íbúðina ykkar:)

Bestu kveðjur,

 Nada Sigríður

Nada Sigríður (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 13:13

10 Smámynd: Garún

Hahaha kjúklingur er frábær....

Garún, 26.9.2007 kl. 12:26

11 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

    

En heyrðu er ekki kominn tími á smá pistil beibe? 

Þú átt tölvupóst frá mér

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 27.9.2007 kl. 22:13

12 Smámynd: Heiða  Þórðar

Góð!

Heiða Þórðar, 28.9.2007 kl. 14:02

13 Smámynd: Saumakonan

LOL!!!!  

Komst ekki í kaffi til þín á meðan á höfuðborgarferðinni stóð þar sem þú vildir barasta ekkert svara símanum frá mér!!! *hnuss*  Reyni kanski aftur seinna ef ég verð á ferð í borg óttans.       Hitti aftur á móti ættingja frá bakkanum í afmæli ömmu og mikið hrikalega var gaman að sjá þau!

Saumakonan, 2.10.2007 kl. 08:18

14 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

HEYRÐU KONA.  HVAR ERTUUUU?????  ÉG ÞARF AÐ NÁ Í ÞIG    N Ú N A 

DUGAR AÐ ÖSKRA??????  Þú átt marga tölvupósta frá mér og fleirum er málið varðar   Ertu ekki orðin spennt?

K. kv. R

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 3.10.2007 kl. 15:29

15 Smámynd: Halla Rut

Halla Rut , 4.10.2007 kl. 16:51

16 identicon

Blogga,blogga,blogga  ;)

 Kveðja nafna ;);)

Elín Birna (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 19:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband