Fúsi fylgir þér, já hvert sem liggur leið......

Þegar ég var barn, fór ég í sunnudagaskóla á Eyrarbakka sem innihélt litla kórinn sem stjórnað var af stakri snilld af henni Ruth á Sólvangi....( kaldur kuldinn kælir köttinn) Þetta lag var oft sungið og oft kom fyrir að við vorum látinn syngja það í Sunnudagsmessunum. Ekki var ég samt að skilja hver þessi Fúsi væri og taldi víst að það hlyti samt að vera ósköp góður gæi fyrst hann vildi fylgja manni hvert sem leið lá og söng ég hátt og skýrt í hvert einasta skipti ;Fúsi fylgir þér, Fúsi fylgir þér, Fúsi fylgir þér, já hvert sem liggur leið; og aldrei var ég leiðrétt...ekki í eitt einasta skipti. Ég er með seinan fattara og fattaði það fyrir ekki svo löngu síðan...hmmm??? já ég veit ég er fullorðin...so what....að það sem sungið var, var um Jesú sjálfan en ekki góðvin minn Fúsa... Fúsi breyttist því í Fús ég fylgi þér já hvert sem liggur leið...he he heLoL  Nú virðist dóttir mín 2 ára örverpið mitt ætla að taka upp miðsskilning móðir sinnar og syngur fingralagið hátt og skýrt...Þumalfingur, þumalfingur hvar ert þú, hér er ég, góðan daginn daginn daginn. Því næst vísifingur svo langa töng, baugfingur en þegar kemur að litli fingur byrjar miðskilningurinn og hún syngur hátt og snjallt vitleysingur, vitleysingur, hvar ert þú? hér er ég, hér er ég. Góðan daginn daginn daginn. BARA SNILLD!!!! En hvaðan skildi ég svo fá þetta????? Kannski frá föður mínum???hmmm????? Bráðum koma inn myndir af nýja slotinu, þangað til...gangið hægt um gleðinnar dyr og sofið rótt í nótt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Indriðason

Vitleysingur!

BWAHAHAHAAHA!!!!

Alveg frábær sumar af þessum ... "breytingum" sem verða á textum....

Gaman að sjá að þú ert ekki dauð úr öllum æðum, og (svo ég haldi mig við mínar setningar... það var svoooooo erfitt að leggja þær á minnið....)

"Hvernig gengur í reykvinnslunni?"

Einar Indriðason, 18.11.2007 kl. 01:32

2 identicon

Hehehehe.

Hún litla frænka mín er sko bara snilld.

Kv. að austan, Alli

Alli (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 02:59

3 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Gaman að heyra frá þér skvís

Katrín Ósk Adamsdóttir, 18.11.2007 kl. 17:33

4 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

hahaha hún er frábær, just like her mum

Það var nú alltaf gaman í sunnudagaskólanum í denn

Knús og blessun darling

Frábær helgin sem er að klárast, vá þvílík Guðsblessun sem þarna var og heilagur andi þvílíkt að starfa, tala betur við þig í síma

Sædís Ósk Harðardóttir, 18.11.2007 kl. 21:05

5 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Og svo var það smávaxin ég, sem "leitaði" árum saman af "öpunum"  í  "Apatekinu" í Eyjum, og mútta mín skildi ekkert í þessum teygingum og reygingum í barninu og skriði undir borð og stóla, þegar versla þurfti hóstasaft eða meðul.  Og systir mín var 5 ára, með það á tæru að hún Guðrún Á. Símonar óperusönkona byggi á "Símstöðinni" okkar Eyjamanna!  Misskilningur eða frábært ímyndunarafl?  Ekki gott að segja.

Sigríður Sigurðardóttir, 18.11.2007 kl. 22:05

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegur misskilningur, hún er sko enginn veitleysingur hún dóttir þín. Eigðu góða viku með vitleysingunum þínum.  Phew 

Ásdís Sigurðardóttir, 18.11.2007 kl. 22:11

7 Smámynd: Nefmælt og Kokmælt

Kæra bloggvinkona
okkur Nefmæltum og Kokmæltum á MISSKILNINGI, er bæði ljúft og skylt að leiðrétta smá MISSKILNING hjá þér. Sjáum nefnilega að þú skrifar annarsvegar miðsskilningur og hins vegar miðskilningur - allavega notar þú eð (ð) í bæði skiptin. Það er bara ekkert ð í MISSKILNINGI
Samt skemmtilegur MISSKILNINGUR

Nefmælt og Kokmælt, 19.11.2007 kl. 10:31

8 Smámynd: Saumakonan

miðjuskilningur hvað???    iss þetta er í ættinni *frussss*    

Gleymi aldrei þegar ég bjó í Svíþjóð... nýflutt og að læra málið.   Fékk þennan risahlussugeitung inní stofu til mín og varð svo skelkuð (enda ekki vön svona ferlíkjum eins og "bålgeting" *hrollur*)... hljóp út til nágranna míns sem var í mesta sakleysi sínu að þvo bílinn sinn og bað hann vinsamlega að hjálpa mér að losna við þetta ferlíki.  

Skildi svo ekkert í því að aumingjans maðurinn horfði bara á mig stórum augum og var við það að forða sér í burtu frá þessari snaróðu kerlu....        sem bað hann um að DREPA GEITINA Í STOFUNNI HJÁ SÉR!!!!  

Saumakonan, 19.11.2007 kl. 13:49

9 identicon

hæ skvís...

vildi bara láta þig vita a ég er komin blog síðu hér á blog.is

frk-fidrildi.blog.is

vonandi "sé" ég þig...hehe

knús Þóra (fiðrildi)

og ég ætla að hafa það eitt af mínum fyrstu verkum þegar ég kem heim næst að hitta þig... allt of mörg ár síðan síðast...;o)

Þóra (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 14:41

10 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Hver er þessi Fúsi?

Vitið að ég fór með mömmu alltaf í messu á sunnudögum. Eftir eina slíka spurði ég mömmu hvers vegna presturinn segði alltaf, allt árið um kring:Guði sé lof og dýrð fyrir gleðilega Páska! Þá var það auðvitað ....gleðilegan boðskap!

Rúna Guðfinnsdóttir, 19.11.2007 kl. 15:21

11 Smámynd: Einar Indriðason

"Frá, frá, Fúsa liggur á!"

(sami Fúsi?)

Einar Indriðason, 19.11.2007 kl. 17:00

12 Smámynd: Ásta Björk Solis

Fyndid, thegar eg bjo i Alaska hringdi Islensk vinkona min i mig og sagdi Asta eg veit ekki hvad eg a ad gera thad er  mus her vid gluggann hja mer,eg natturulega sagdi henni ad stje bara musgildru thar en hun hvadi bara svo eg loksins fattadi ad hun var ad tala um moose sem er elgur held eg.Eg minni hana nu oft a thettad

Ásta Björk Solis, 19.11.2007 kl. 18:06

13 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Þetta er gott he he he strákurinn minn söng alltaf snæfaddur snjókarl um jólin

Einar Bragi Bragason., 21.11.2007 kl. 00:51

14 Smámynd: Helga Nanna Guðmundsdóttir

takk fyrir færsluna....en nú heimta ég bara meir mín kæra

Helga Nanna Guðmundsdóttir, 21.11.2007 kl. 01:28

15 identicon

Hæ hæ

Gaman að fylgjast með ykkur. Þú ert snildar penni.  Hafið það sem allra best ;D

Heiða Jóa Snjókudóttir (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 16:07

16 identicon

Hæ hæ

 Bara að kvitta fyrir mig

Kveðja Elín Birna

Elín Birna (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 10:34

17 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Góða helgi skvís

Katrín Ósk Adamsdóttir, 23.11.2007 kl. 20:31

18 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

OOO!!!!! Ég er í slæmu skapi núna.....Ástæða: Jú! Ég var búin að kommenta á eitt og sérhvert ykkar svar við kommentunum mínum og allt mjög sætt með tilheyrandi knúsum og lofsyrðum hér og þar en varð það á að gleyma að ýta á senda....ARRRRGGGGG!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Okey okey.....ekki þýðir að gráta Björn Bónda....( og þessi setning er ótrúlega fyndin í mínu tilviki....) (grenj úr hlátri) Svo ég segi bara þið eruð öll einstök hvert á sinn hátt og gefið mér ómælda ánægju með kommentunum ykkar...love you all og knús á ykkur öll hænurnar mínar

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 27.11.2007 kl. 01:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband