Ég er komin heim í heiðardalinn.........

Alltaf gott að koma heim, þó að ég vissulega get ekki neitað því að maður er smá lónlí eftir að vera í kringum svona mikið af fólki undanfarna dagaWoundering Ég er grasekkja og er búin að vera það yfir páskana og sakna bóndans.........og okkur öllum stelpunum hans er farið að hlakka mikið til að fá hann heim. Ég komst að því eftir svæfinguna og rannsókn inn í hugarheim minn að gott er að fá á kjaftinn til að gleyma sér ekki í gleðinni......................er á fullu í sjálfsvinnu og held ótrauð áfram.

Ég og bóndinn erum búin að vera saman í 5 ár núna 1 april, og 6 júní munum við ef Guð lofar fagna enn stærri 5 ára sigri. Ég ætla að gera þetta ár að árinu mínu þar sem margt er framundan. Elsta dóttir mín fermist núna 27 april....og þá á ég bara eftir að ferma 3 dætur í viðbótLoL Svo í ágúst verður húllumhæ og svaka fjör + slatti af drama= ást og hamingja.............Linda mín verður 7 ára núna 4 april og Anita mín 9 ára 17 sama mánaðar. Örverpið hún Carmen Helga á svo 3 ára afmæli þann 11 mai, þann dag á líka Helga mágkona afmæli og bróðir minn sem dó var fæddur á þeim degi líka, árið 76. Svo er það kreppan, þannig að nú er bara ráð að spíta duglega í lófana og finna gott peningatré til að tína af til að eiga fyrir öllum þessum útgjöldumLoL

Ég held að það sé hvorki hamingja né óhamingja sem mestu máli skiptir. Hvernig tökum við á þeim vandamálum sem við stöndum andspænis? Hvernig er best að draga af þeim lærdóm og láta það sem við höfum lært ganga áfram til annara, ef þeir skyldu vera mótækilegir fyrir þekkinguna?

lílfsviðhorf Bills, bls. 306.

Jæja best að fara að útbúa einhvern hádegismat og skreppa svo niður í þvottahúsið.

Ég ætla svo að nýta tímann á meðan að örverpið tekur dúrinn sinn og hugleiða svoldið og tala við hinn húsbóndannInLove

Eigið góðan dag.

Það er aldrei svo bjart að ekki geti syrt og aldrei svo svart að ekki geti birt.........Eða hvað????????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góð pæling í gangi hjá þér stelpa.  Maður verður að njóta alls þess sem gefst, lífið er of stutt fyrir leiðindi.  Vona að þú verðir nú svolítið dugleg að blogga á næstunni, myndir af dætrum yrðu líka vel þegnar.  Knús  Big Hug

Ásdís Sigurðardóttir, 26.3.2008 kl. 13:13

2 Smámynd: Signý

Góð pæling, akkúrat það sem ég er að vinna með þessa dagana Þ.e.a.s þetta með að horfast í augu við sjálfa sig, og taka á vandamálunum sem eru í kringum mann.

En velkomin heim og gangi þér vel í sjálfsvinnunni þinni

Signý, 26.3.2008 kl. 13:55

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alltaf gott að koma heim Ella mín.  Og til hamingju með árið þitt allt elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.3.2008 kl. 14:45

4 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Þú er svo dugleg haltu áfram frænka þú getur allt sem þú villt svo veistu hvar ég á heima kiss kiss.

Eyrún Gísladóttir, 26.3.2008 kl. 16:32

5 Smámynd: Helga Dóra

Til lukku með áfangann með kallinum. Þú ert ekkert smá rík af börnum maður.

Helga Dóra, 26.3.2008 kl. 16:58

6 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Frábær færsla. Rétt þetta með hamingjuna og lífið. Hvernig við spilum úr þessu öllu. Það er nóg að gera framundan hjá þér í afmælunum.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 26.3.2008 kl. 17:41

7 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sæl skvís.

Já það er mikið um að vera hjá þér sé ég.  Haltu áfram á sömu braut og til hamingju með ÖLL þessi afmæli, ekki síst þetta 5 ára

Knús í kotið

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 26.3.2008 kl. 17:48

8 identicon

Velkomin aftur.Góð lesning

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 19:09

9 Smámynd: Aðalsteinn Baldursson

Þú gleymir 5. apríl

Aðalsteinn Baldursson, 27.3.2008 kl. 01:47

10 identicon

Sæl!

Gaman að sjá pælingar þínar. Til hamingju með öll þessi tækifæri til að gleðjast með sínum.

runel

runel (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 10:09

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Baráttukveðjur

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.3.2008 kl. 10:45

12 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Góðar pælingar fyrir sálina, gangi þér vel.

Sigríður Sigurðardóttir, 27.3.2008 kl. 20:18

13 Smámynd: María Guðmundsdóttir

heyr heyr. Gód lesning. takk fyrir thad. til hamingju med øll afmælin. er svipad á minu heimili..fjøgur børn og eiga øll afmæli á eins mánadar timabili.. ágætt ad klára thad mál einn tveir og pallischnell..

bestu kvedjur frá dk

María Guðmundsdóttir, 28.3.2008 kl. 11:57

14 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

"Litli strákurinn minn" er í bekk með þinni elstu og á hann að fermast 4. maí Það er þriðja og síðasta fermingin sem ég þarf að sjá um, nema kannski hjálpa ég eitthvað til þegar dóttursynirnir fermast

Góða helgi! 

Rúna Guðfinnsdóttir, 28.3.2008 kl. 12:23

15 Smámynd: Halla Rut

Lifðu í lukku, ekki í krukku.

Halla Rut , 28.3.2008 kl. 21:23

16 identicon

Hæ Elín. .

Gaman ad lesa færsluna tína. .

Bid ad heilsa øllum..

Dana María (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 23:11

17 Smámynd: Þóra Hvanndal

Hæ eskan

Greinilega nóg að gera hjá þér á næstunni.. til hamingju með alla áfangana og þá sérstaklega þennann 6. júní.. ætli hann sé ekki sá sem þýðir mest...??

Kem til landsins örstutt 11 apríl.. væri nú gaman að gera enn eina tilraunina til að reyna hittast...hehe... hefur ekki gengið svo vel fram að þessu..

Vona að allt gangi vel eftir svæfingu og það sem því fylgdi... 

Er enþá að rena koma mér niður á jörðina eftir mergjuðustu ferð allra tíma... mæli tvímælalaust með Tælandi... alveg frábært..

knús Þóra

Þóra Hvanndal, 30.3.2008 kl. 18:19

18 Smámynd: lady

sæl Elin takk fyrir að kvitta hjá mér gott að heyra að þér líður  betur það er fyrir öllu óska þér  og fjölsk innilega góða viku kær kv Ólöf Jónsd

lady, 30.3.2008 kl. 23:40

19 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Takk Ásdís mín. Já lífið er sko alltof stutt fyrir leiðindi. Takk fyrir kvittið og ég tek þig á orðinu.

Takk Signý mín. Sjálfsrækt er öllum nauðsynleg öðru hverju.

Takk Ásthildur mín.

Takk Eyrún mín, Knús og kiss til baka.....Ég kem örugglega aftur í heimsókn við tækifæri.

Takk Helga Dóra mín og já ég er sko rík af börnum.......mætti samt vera pínu meira í buddunni

Takk Jórunn mín, já það er sko nóg að gera.

Takk Rannveig mín og knús til baka.

Takk Birna mín

Ég skal muna það 5 apríl Alli minn.

Takk Runólfur minn, Ég bið að heilsa Grétu.

Takk Jenný mín og sömuleiðis, kannski hitti ég þig einhvern daginn á leynifélagsfundi.

Takk Sigríður mín.

Takk María mín, já það er satt.....ágætt að klára þetta bara.

Takk Rúna mín.......Ég vissi það nú reyndar og hef nú oft heyrt minnst á hann Snorra  Þú átt sko pottþétt eftir að hjálpa til með fermingar ömmudrengjanna held ég.

Takk Halla mín.......Sömuleiðis

Takk Dana mín og gaman að sjá þig hér í bloggheimi. Viltu vera memm?????

Takk Kristjana mín. Sömuleiðis.

Takk Þóra mín og já það skal takast í þetta sinn.......við höfum sko pottþétt nóg að rifja upp og hlægja af.......Ég hef einmitt heyrt það.....að það sé svo frábært í tælandi...Hvernig fannst þér umferðarmenningin???????

Takk Ólöf mín....það er mikið rétt, það er sko fyrir öllu að líða vel. Hafðu það sem allra allra best.

Takk Valli minn...Ég geri það.....Þú sömuleiðis.

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 4.4.2008 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband