Það er bara svona, bara 3 blogg í dag.........

Ákvað að setja inn ritgerð sem ég gerði í íslensku og fékk 10 fyrir.

Ef einhver nennir að lesa, smá innsýn inn í bernsku mína.

 

 

Mín fyrsta endurminning er frá Hofsvallagötu 17 í Reykjavík, þar sem ég sit  í gluggakistunni og mamma heldur í mig og segir “Sjáðu Elín, þarna er fólkið, þarna er skrúðgangan”og bendir út um gluggann. Ég man samt aðallega eftir lúðrasveitinni. Ég var í köflóttum buxum, rauðum og bláum. Mamma trúir mér ekki og segir að það geti ekki verið að ég muni svona langt aftur.”Elín , þú varst 6.mánaða og þetta var á sumardaginn fyrsta. Þú hlýtur bara að hafa séð ljósmyndir af þessu.” Það er alveg sama. Ég er handviss, ljósmyndir geta ekki fangað augnablikið á þennan hátt, sama hvað hver segir. Á Hofsvallagötu 17 bjó ég fyrstu 10. mánuðina meðmömmu minni en hún var aðeins 17 ára þegar hún eignaðist mig. Pabbi var víst svaka töffari í útvíðum gallabuxum og rússskinnskögurjakka og tókst á einhvern hátt að heilla mömmu mína upp úr skónum. Þegar pabbi festi kaup á fyrsta húsinu okkar en þá fluttum við mamma til hans. Það hefur ekki verið auðvelt fyrir borgarbarnið móðir mína að flytja í krummaskuðið á Eyrarbakka enda ætlaði hún sér aldrei að vera þar lengur en í ár. Pabbi er og hefur alltaf verið frístundabóndi og hann hefur alltaf haft ótrúlega gaman af dýrum. Og er ég alveg eins og hann að því leiti. Pabbi tók mig með sér í sauðburðinn og lyfti mér á bakið á hestunum. Hann gaf mér lítið lamb í sængurgjöf, eitt af mörgum, því að hann átti eftir að gefa mér mörg lömb. Eitt lambið skírði ég Svarta Kata í höfuðið á sjálfri mér. Ég var alltaf ákveðin í því sem barn að ég skildi eiga mörg dýr þegar ég yrði stór. Pabbi minn vann við að leggja símalínu auk þess vann hann á sjó. Mér er það enn í fersku minni öll þau skipti sem að hann kom heim með bækur handa mér sem hann hafði verslað í einhverri sveitabúðinni á leiðinni úr vinnu. Plúbb fer til Íslands hét ein bókin og var í miklu uppáhaldi hjá mér. Pabbi sótti alla tíð messur og stundum fór hann á samkomur með mömmu sinni í Fíladelfíukirkjunni í Reykjavík og stundum fór ég með. Pabbi kenndi mér mikið af bænum og á hverju kvöldi spurði hann “Ertu búin að bursta og fara með bænirnar.” Pabbi minn er mjög forvitinn að eðlisfari og þann kost, ja stundum ókost, hef ég erfðafræðilega frá honum. Útlit mitt svipar líka til föður míns. Faðir minn hefur móbrún augu og ég líka, nef okkar er svipað, hárliturinn músabrúnn, stuttir fætur og munnsvipur minn er keimlíkur pabba. Faðir minn hefði aldrei getað þrætt fyrir mig, ekki að það hvarflaði að honum í eina sekúndu  enda elskaði hann mig frá fyrstu stundu er hann á mig leit. En eitt hef ég frá honum og föðurömmu minni sem ekki er vitað til að sé í neinum öðrum fjölskyldum en það eru litlir og já, stundum stærri bláir blettir á húðinni. Amma fæddist með einn, pabbi aðeins fleiri og systir hans líka. Ég er með marga á mismunandi stöðum, ég er með nokkra bletti á hálsinum. Eitt sinn ætluðu 2 strákar í skólanum að stríða mér á þessu. “Elín! Ertu farin að mygla?” Ég tók það ekkert nærri mér. Pabbi er stundum svolítið úr takt og svolítið fljótfær. Hvatvís myndu sumir segja. Eitt sinn voru svið í matinn, pabbi tók sviðahaus af borðinu og lét sem hann væri að jarma, “meeee, þetta er Svarta Kata.” sagði hann. Ég fékk kökk í hálsinn og augu mín fylltust tárum og matarlystin að sjálfsögðu hvarf. Pabbi skyldi ekkert í þessu enda var hans meining bara að vera fyndinn.  Af pabba lærði ég margt, trú á Guð, að meta íslenskan mat, að elska dýrin og koma vel fram við þau, að vera iðin og ótalmargt fleira. ég lærði líka af honum allskonar ósiði sem eru samt ekkert alvarlegir. Marga galla hef ég líka erft frá föður mínum og má þar stærsta gallann nefna en það er óþolinmæði. Móðir mín og faðir minn giftu sig 1975, en þá var ég á þriðja ári. Sama ár var leikskólinn Brimverstofnaður á Eyrarbakka, þar fékk móðir mín vinnu og hefur unnið þar síðan. Ég þurfti því aldrei að fara í pössun, þar sem ég fór alla morgna með mömmu í leikskólann. Þetta var yndislegur tími og á leikskólanum var dásamlegt að vera. Skemmtilegast þótti mér að ganga í bandi, en þá fór mamma ásamt annarri starfskonu með langt band með lykkjum fyrir hverja hönd, út að ganga með öll börnin. Við héldum hvert í sína lykkju og ein starfskona fremst og önnur aftast. Ég og mamma tókum oft rútuna í bæinn  og gistum þá yfir helgina hjá ömmu og afa. Þ.e.a.s. foreldrum mömmu. Afi sótti okkur alltaf á umferðarmiðstöðina og hlýr og mjúkur faðmur hans umvafði mig. Amma beið venjulega eftir okkur heima og breiddi út faðminn á móti mér þegar hún sá mig og sagði “ Ertu komin?” ,  og elska hennar leyndi sér ekki. Mamma var og er ein sog foreldrar sínir. Svo mikið hlý og góð. Hún hefur óbilandi trú á sjálfri sér, á jákvæðan hátt þó. Viljasterkari , duglegri og staðfastri kjarnakonu er varla hægt að finna, þetta allt er hún móðir mín. Mamma stappaði alltaf í mig stálinu og í fangi hennar fékk ég alltaf  að sitja í, hvort sem við vorum að horfa á sjónvarpið, Húsið á sléttunni, hún að syngja fyrir mig, tala við mig eða hugga mig. Ég var ótrúlega háð móður minni. Svo mikið að halda mætti að naflastrengurinn hafi aldrei slitnað. Þegar ég svo á unglingsárum fluttist sem au-pair stúlka til Sviss, tók ég náttkjól af mömmu með mér til að finna lyktina af henni þegar ég fengi heimþrá. Móðir mín missti barn aðeins 21 árs gömul. Ég var á fjórða ári og man eftirvæntinguna eftir litlu systkini. Ég fékk fréttirnar frá ömmu á róló en það kallaði ég ömmu og afa á Hofsvallagötu. “Jæja Elín, núna áttu lítinn bróðir.” Og það sem ég var glöð. Daginn eftir dó hann, hjartagalli. Ég sem barnung mær tók missinum létt en móðir mín hugsaði jafnt og þétt, eins og segir í texta Einars Kvarans. Mamma var alveg ákveðin í að halda áfram og láta ekki bugast og hugsaði um mig af alúð sem áður fyrr. Marga góða kosti  erfði ég frá mömmu t.a.m. þá  er ég mjög opin tilfinningalega eins og mamma, listræn, dugleg o.m.fl.  Mamma kenndi mér ógrynni öll af lögum og textum og sungum við mikið saman. Hún kenndi mér líka að svara fyrir mig. Galla hef ég líka erft frá mömmu t.d. þrjósku og stórt skap. Helgasonarskapið er það kallað í höfuðið á afa mömmu. Í útliti svipar mér líka til mömmu þó er ég mun líkari föður mínum. Á hverju sumri kom frænka mín til okkar. Hún bjó í Vestmannaeyjum og er systurdóttir mömmu. Þórína er tveimur árum eldri en ég og ég leit mjög upp til hennar. Hún var sá aðili sem ávalt reyndi að hafa vit fyrir mér og oftast tókst það en þó ekki alltaf. “Eigum við að baka eitraða köku handa Helgu Björgu?” ” Nei! Elín, svoleiðis gerir maður ekki.” “OK” eða “Eigum við að fara á puttanum á Selfoss?” “Nei það er hættulegt.””Þá fer ég bara ein.”Stundum rifumst við eins og hundur og köttur en ég bar samt alltaf mikla virðingu fyrir henni og var svo stolt af þessari fallegu, stóru frænku sem á margan hátt kom í staðinn fyrir stóra systir. Á tímabili þráði ég að eignast hálfsystir og gekk meira að segja svo langt að biðja pabba um eina slíka, því var vissulega ekki sinnt, þó brosti pabbi yfir vitleysunni í dóttir sinni. Ég þráði hana svo mikið að ég laug að hún væri til að vinum mínum. Sagði að hún héti Kristín Elfa og byggi í Reykjavík.Ég ber nafnið Elín Katrín í höfuðið á móðurömmu minni. Ég velti nafninu ekkert  sérstaklega fyrir mér fram að 6 ára aldri. Ég bara hét þessu nafni og þannig var það. Móðir mín kallaði mig alltaf báðum nöfnunum enda ótrúlega stolt af þessu nafni sem hún ákvað strax á meðgöngunni að gefa mér. Pabbi kallaði mig oftast bara Elín en notaði bæði nöfnin þegar að hann þurfti að byrsta sig við mig “ELÍN KATRÍN ætlar þú að tala aðeins við mig!” Pabbi söng oft Katarína stúlkan mín og mamma kallaði mig stundum gælunafninu, Trýna mín. Um 6 ára aldur var ég mjög ósátt við nafnið mitt og vildi þá mikið frekar heita nöfnum eins og Elísabet og vera þá kölluð Beta. Maddit, Lotta eða Ída en allt eru þetta sögupersónur úr barnasögum eftir Asdrit Lindgren. Helst vildi ég samt heita Lára  eins og Laura Ingalls úr Húsinu á sléttunni og ekki nóg með það heldur vildi ég helst vera hún. Á fullorðinsárunum lærði ég að meta nafn mitt til góðs. Amma mín Elín Katrín Sumarliðadóttir var ein sú persóna sem hvað mest mótaði líf mitt og ein sú albesta manneskja sem ég hef á ævi minni kynnst og ber ég því nafn mitt með stolti.Ég átti yndislega æsku og skemmtilegt, gott og gagnlegt uppeldi sem hefur vissulega mótað mig sem uppalanda, vin, eiginkonu og persónu. Ég vona bara að einn daginn sitji börnin mín með svona fallegar minningar á borðinu fyrir framan sig eða það sem er enn betra greyptar í huga þeirra.

 

 

Verði ykkur að góðu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

ÆÐI ÆÐI ÆÐI vá hvað það er gaman að lesa svona fallega sögu

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 14.3.2008 kl. 12:47

2 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég táraðist Elín Katrín, yfir þessum minningum þínum(Ég er mjög meir þessa dagana) þetta er falleg frásögn og er ég viss um að foreldrar þínir eru montnir af henni. Hver manneskja má vera hróðug að fá svona vitnisburð eins og þú gefur þínu fólki

Rúna Guðfinnsdóttir, 14.3.2008 kl. 13:30

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ætla að kópera hana og lesa seinna, hef ekki tíma núna ljúfust. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.3.2008 kl. 18:32

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Alvarlega góð frásögn, Elín Katrín.

  Þakka þér fyrir að leyfa okkur að njóta hennar.

Sigríður Sigurðardóttir, 14.3.2008 kl. 22:28

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æðislega góð frásögn. Takk fyrir að leyfa okkur að lesa þetta.  Hafðu það gott um helgina elskuleg.  Hvernig líður þér annars.??

Ásdís Sigurðardóttir, 14.3.2008 kl. 23:37

6 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Já flott frásögn mér datt nú strax amma gesta í hug þegar þú fórst að tala um ömmu þína Elínu þær sumarliðadætur voru nú bara meiriháttar manneskjur og æðislegar ömmur.

Eyrún Gísladóttir, 15.3.2008 kl. 01:06

7 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Ég táraðist nú bara við að lesa þetta Elín mín   Falleg orð um bernskuminningarnar.  Ég er ekkert hissa á að þú hafir fengið 10 fyrir þessa góðu ritgerð.

Hafðu það ævinlega gott mín kæra

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 15.3.2008 kl. 12:46

8 identicon

TAKK.

Kæra frænka það var æðislegt að lesa þetta. Það rifjaðist mikið upp við þennan lestur. Hofsvallagata 17 mun alltaf verða risastór hluti af æskuminningunum enda var maður alltaf velkominn þangað. Mér finnst ekki skrítið að þú skulir hafa fengið góða einkun fyrir þetta því að lýsingarnar eru bara frábærar hjá þér.

Kv. að austan. Alli

Aðalsteinn (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 14:07

9 identicon

Hæ kæra frænka.Takk fyrir hlý orð í minn garð. Frábær ritgerð hjá þér( kemur mér svo sem ekkert á óvart.Verðum nú að fara að hittast eins og í gamla daga.

Knús og kossar til ykkar í borginni. Kveðja frá eyjum Þórína

Þórína STÓRA frænka (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 14:57

10 identicon

Ömurleg ritgerð..........  ég vil leggja nokkur orð í hana....

Svo árið 1979 eignaðist ég lítinn bróður og þvílíka fegurð hafði ég 7 ára stelpan aldrei augum litið... Hann var og er í dag ennþá svo fallegur að ég græt mig í svefn á hverri nóttu.... Svo er hann líka svo gáfaður og ógeðslega sexý. Endalaust fyndinn og í rauninni bara fullkominn og mikill kvenkostur..

Nei nei æðisleg ritgerð..... meira segja ég fékk tár á hvarm

kveðja Litli fullkomni bróðir þinn

Eiríkur Már (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 15:59

11 identicon

Mikið var nú gaman að lesa þetta núna eftir öll þessi ár. Falleg orð í minn garð gullið mitt. Bækurnar voru verslaðar á Landvegamótum og ofstat á föstudögum.

Kveðja til ykkar í borg óttans

Pabbi (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 18:29

12 identicon

Takk fyrir þessa ljúfu lesningu Trýnan mín. Var reyndar búin að lesa þessa ritgerð áður en aldrei er góð vísa of oft kveðin. Og já Eiríkur minn, sannarlega á hún falleg og góð systkyn. Kveðja til ykkar allra. Mamma

Auður Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 19:23

13 identicon

Flott  lesning hjá þér Elín mín það er svo sniðugt með fallegu bláu blettina okkar að Emma Hrönn er með fullt af þeim á baki og rassi.

Emma Guðlaug Eiríksdóttir (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 16:53

14 identicon

Sæl nafna

Mjög fallegt hjá þér,sit hérna  og það rifjast nú margt skemmtilega upp þegar þú skrifar um þetta ;)

Hafðu það sem allra best knús Elín Birna

Elín Birna (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 14:42

15 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Mikið er þetta falleg grein og ég finn hve vænt þér þykir um foreldra þína og fleiri ættmenni sem þú nefnir. Gleðilega páksa Ella mín

Jórunn Sigurbergsdóttir , 20.3.2008 kl. 13:45

16 identicon

Díta (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband