Afhverju er ég alltaf lengur að koma mér á fætur á sunnudögum.......

heldur en aðra daga. Yndislegt líf, reyklaus í 17 dagaSmile Og kallinn 7. Var að koma úr baði og ætla að koma mér í föt, ég sit hérna kviknakin við tölvuna, svo á að fara í sunnudagsbíltúr með fjölsk og kíkja á tengdamömmu. Svo bara læra, læra, læra.....Finnst það reyndar ekki leiðinlegt.

 Nenniði að koma í smá leik?

Ég spyr hver er maðurinn. Vísbendingar!

Rautt, langt, hátt.

Það má bara spyrja spurninga eins sem ég get svarað játandi eða neitandi.

Nema ef þið vitið hver manneskjan er.

Ok! Hver er game?

 

 

                     95925

Bjössi fékk sér tattoo í fyrra, og svo er hann alveg hissa á að hann sé að missa hárið. Hmmm????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: mongoqueen

Kannast við þetta með Sunnudagana! Kom mér ekki framúr fyrr en á hádegi og ég sem er vön að vakna 05:30 á hverjum virkum degi  

mongoqueen, 26.8.2007 kl. 16:21

2 identicon

Rosalega ertu dugleg, h vernig er formúlan, ertu á tyggjói eða bara viljastyrknum, 1. dagur í reykleysi hjá mér á morgun!

ein öfundsjúk (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 16:31

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Eiki rauði    ég vaknaði snemma en lagði mig svo eftir 2 og sofnaði aftur ummmm svo gott.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.8.2007 kl. 16:32

4 identicon

Ég fór í morgun-úti-messu kl 11. Dugleg að hætta að reykja. Ég stefni á að 1 dagur reyklaus verði 1 september 2007. ARG, nú verð ég að standa við það það er orðið opinbert.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 17:26

5 Smámynd: Einar Indriðason

Svarið er... Ómar Ra.. nei, bíddu.. Mikið!! hár.  Hmmm.... Jú, Ómar, áður en hann missti hárið.

En ég fór að velta öðru fyrir mér.....  Hvernig tekur fólk því, þegar þú ferð nakin upp í bílinn, og í bíltúrinn?  Er ekkert bent og hvískrað?  (Og afhverju hafið þið ekki keyrt fram hjá mér?)

Og svona til að vera alltaf jórtrandi sömu tugguna:  Hvernig gengur í loftvinnslunni? :-D

(Ég meina:  Gott að heyra að loftvinnslan gengur vel.)

Einar Indriðason, 26.8.2007 kl. 17:30

6 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sá fyrsti sem mér datt í hug er auðvitað Eiríkur Hauksson sá mikli rokkari   En gangi þér vel í bindindinu og skólanum væna.

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 26.8.2007 kl. 19:28

7 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

mongoqueen, Í alvöru? 5:3ö....vá! Ég segi nú ekki annað. Ertu á amfetamín sterum?

Öfundsjúka, Ég nota tyggjó

Ásdís mín, þú vannst þessa keppni....jibbý Já það er svo gott að lúlla.

Birna, Já, það er ekki aftur tekið ef maður opinberar þetta á blogginu. Ég gerði það og sjáðu bara Ég ætlaði líka í messu en nennti ekki

Ómar er ekki rétta svarið ó nei. Ég klæddi mig áður en ég fór út í þetta skiptið, annars bý ég í gettóinu þar sem allt virðist hinn sjálfsagði hlutur Loftvinnslan gengur fínt......Hafðu það súper, Einar.

Já Rannveig mín mikið rétt og þú hlýtur þann titil að vera í öðru sæti, jibbý

Ég talaði samt ekki um hár heldur hátt og það var gott að ég bjó sjálf til spurninguna því að annars hefði ég giskað á annan rauðbirkinn mann , sem er hátt á risið og á vanda til að fara með langar rumsur Hver skildi það nú vera?

Gangi þér líka vel elsku vinkona......Ég bý í sveit á suðfé á beit og sællegar kýr út á túni.... nei nei nú er ég alveg út á túni

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 26.8.2007 kl. 20:27

8 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Viltu gjöra svo vel að vera í fötum við tölvuna, hitt getur valdið misskilningi, æst upp kenndir allra þeirra karlmanna sem skoða bloggið þitt

Sædís Ósk Harðardóttir, 26.8.2007 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband