Ég á 102 bloggvini.....Það finnst mér gaman.

Mig dreymdi í nótt ansi furðulegan draum. Mig dreymdi að ég var á netinu að skoða alla bloggvini mína og það voru 3 komment og kvitt í gestabók allt frá Eyþóri Arnalds. Hann þakkaði mér fyrir flott blogg og baðst afsökunar á að vera ekki búinn að kommenta fyrr, hann skrifaði líka ástarþakkir fyrir að vera búin að kommenta svona oft fallega til mín. Hmmmmm??????? Ég er ekki að skilja? Hef ekki kommentað oft hjá honum og er ekki að hugsa um hann neitt sérstaklega, þekki manninn ekki neitt nema að hann er einn af bloggvinum mínum hundrað og tveimur......Ég held að ég sé bara alltof mikið í tölvunni...er einhver þarna sem kann að ráða drauma. HJÁLP ÓSKAST!!!!!!!!!!!

                          3863


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Já, gæti verið Ég hef alltaf verið svoldið veik fyrir kærulausum mönnum sem brjóta lögin

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 6.8.2007 kl. 19:47

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

sorry, ég er ekkert góð í draumráðningum

Huld S. Ringsted, 6.8.2007 kl. 20:17

3 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Hæ sprella mín   Þú verður að fara í myndatöku hjá Mynd í Hafnarfirði til þess að fá svona fína mynd hehe   skannar hana svo inn og voila!

Ótrúlega fyndinn draumur... hmmm laumuást já???  Ég hitti mömmu þína og pabba í nótt.  Alltaf gaman að spjalla við hana Auði.  Það er bara eins og Elín K sé komin   Vorum að svíkja lit með því að kíkja á Stokkseyri á brennu og flugeldasýningu.  Mögnuð sýning sko sem m.a. karlinn minn sá um

Hafðu það gott 'skan.

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 6.8.2007 kl. 21:38

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir síðustu blogg. Fallegt þetta með Jesú vini okkar. Draumurinn er þannig að þú þekkir einhvern Þór sem er bloggari og langar að fá hann sem bloggvin en hann er Ey-Þór, ruglið í mér vááá   ég held ekki að þetta tengis Eyþóri á neinn hátt, kannski hári og sítt hár í draumi er fyrir peningum.  love U

Ásdís Sigurðardóttir, 7.8.2007 kl. 00:03

5 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Til að losna við þessar Eyþórs martraðir VERÐURÐU að taka þá áhættu að kaupa þér trampólin. Annars bætir það vist miklu miklu meira en þessar draumfarir.

Eiríkur Harðarson, 7.8.2007 kl. 00:08

6 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Huld, ekkert mál

Valgeir,Já Valgeir minn, ég er líka eins og þú, mig dreymir oft mjög mikið og suma drauma man ég mjög lengi á eftir. Það er að koma nýr pistill Hafðu það líka gott vinur.

Rannveig, Mynd, já, ég man það Já við mamma erum oft mjög svipaðar....við erum allavega með mjög svipaðan húmor...það ert þú nú reyndar líka, svona pínu svartur húmor Já já, svíkja lit á Stokkseyri af öllum stöðum he he he....I´m a regin a peking, puting in a down in a world...eða hvernig sem þetta er nú skrifað....manst kannski eftir þessari fleygu setningu, smá hint ( Hestakall frá Stokkseyri)  Er minn að skjóta út rusli núna, pabbi kemur niður með prikinu  Gott þið skemmtuð ykkur vel....Hafðu það gott sömuleiðis elskan

Ásdís, Takk fyrir öll kommentin þín, mér þykir ofur vænt um þau Já bréfið frá Jesú er fallegt Hmmm....Þú ert aldeilis draumspök...ég vona að þetta með hárið rætist Love you2

Eiríkur, Ég held þú sért haldin þráhyggju í trampólín En það er kannski satt að ef ég bara hoppa nógu mikið að þá hætti mig að dreyma, held samt að það sé öfugt því að mig dreymir svo ótrúlega mikið þegar ég er þreytt

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 7.8.2007 kl. 11:19

7 Smámynd: Einar Indriðason

Þetta með trampólínið, og hætta að dreyma?  Það gerist ef trampólínið er haft innandyra, meðan hoppað er.  Helst þar sem lágt er til lofts.

Einar Indriðason, 7.8.2007 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Apríl 2025

S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband