Ekki skrítið að læknar skrifa óskiljanlega skrift

Nokkrir gullmolar úr læknaskýrslum:

- Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn.

- Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið.

- Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt með kjötbollum.

- Eðlileg augnskoðun fyrir utan sérkennilegt andlitsfall...

- Eftir það var hún í samkvæmi...

- Fékk vægan verk undir morgunsárið...

- Hún hefur þroskast eðlilega framan til...

- Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitt hvora áttina í byrjun desember.

- Húðin var rök og þurr.

- Misnotaði áfengi í óhófi áður fyrr...

- Móðir getur látið barnið sitja með því að setja fæturna í hring...

- Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér sjálf...

- Saga er fengin hjá uppgefnum ættingjum...

- Sjúklingur á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur...

- Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar að bar mann sem heitir Kristmundur.

- Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt...

- Tekin var mynd af sjúklingi sem sýndi breytingar í Hafnarfirði...

- Við komu á spítalann var sjúklingur fljótlega skoðaður af undirrituðum og kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára karlmann sem er mjög þrekvaxinn og vöðvastæltur...

- Við rectal exploration fannst stækkaður skjaldkirtill...

- Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð...

- Við skoðun eru engar eitlastækkanir að gagni...

- Það sem fyllti mælinn var þvagleki...

- Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa...

- Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur.

- Þessi maður veit ekkert um skyldleika í ætt....

- Sjúklingur batnar ef lagst er ofan á hann...

- Sjúklingur borðar reglulegt mataræði...

- Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð.

- Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert.

- Sjúklingur er svo hress að hann gæti gengið langleiðina til Akureyrar...

- Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niður úr.

- Sjúklingur fékk sér vöfflur í morgunmat og var kominn með lystarstol í hádeginu.

- Sjúklingur fékk þá mjög langsótt kvef...

- Sjúklingur fær verki í bringuna ef hún liggur á vinstri hlið lengur en í eitt ár.

- Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar upp í sumarbústað - en er ráðlagt eftirlit ef verkirnir koma fram við önnur tækifæri...

- Sjúklingur hefur átt við gott heilsufar að stríða...

- Sjúklingur hefur fremur óbærilega verki...

- Sjúklingur hefur formlegar hægðir...

- Sjúklingur hefur skilið eftir hvítu blóðkornin á öðrum spítala.

- Sjúklingur hefur verið að þyngjast af asmanum sl. sólarhring...

- Sjúklingur hefur verið mædd sl. fimm ár...

- Sjúklingur hefur verið niðurdreginn alveg síðan hann byrjaði að hitta mig 1983.

- Sjúklingur lenti á parketgólfi og bar fyrir sig höndina með þeim árangri að hún brotnaði...

- Sjúklingur hefur verið í vandræðum með gervifótinn en hann hefur haft fjóra fætur frá því að hann lenti í slysinu, en þann síðasta fékk hann í apríl sl.

- Sjúklingur lærði söngnám...

- Sjúklingur tekur engin lyf en magnyl þess á milli...

- Sjúklingur tárast og grætur stöðugt. Virðist líka vera niðurdreginn.

- Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þangað til flugvélin hans varð eldsneytislaus og hrapaði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er algjör snilld, er búin að liggja hérna í krampakasti! 

Díta (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 12:05

2 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

 Eigðu góðan dag Díta

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 15.7.2007 kl. 12:48

3 identicon

Þetta er skemmtilegur samtíningur af speki langskólagenginna lækna. V ið skulum vona að verk þeirra séu betri en þetta gefur til kynna.

RunEl (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 13:29

4 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Já vonandi eru vinnubrögðin betri  Bjössi biður að heilsa, Hafið það gott í dag

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 15.7.2007 kl. 13:43

5 identicon

AHHAHAHHAHAHAHAH ég er búin að GRENJA úr hlátri hérna yfir þessu ... þetta er svo geðveikislega fyndið !!!!!

Sonja Berglind Hauksdottir (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 17:12

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

hahahaha þvílíkt endalaust rugl, hvar nærðu í svona?

Huld S. Ringsted, 15.7.2007 kl. 17:25

7 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Skoðaðu ljóði Litið um öxl á síðunni minni ....þá sérðu skemmtilegar pælingar Hákoni...bæti svo kannski öðru við í kveld....Hákon sér nefnilega öll þessu litlu atriði sem okkur finnst sjálfsögð og fær mann til að setjast niður og hugsa.

Einar Bragi Bragason., 15.7.2007 kl. 17:33

8 Smámynd: Einar Indriðason

Reyndu að grafa upp listann frá tryggingarfélögunum.  Þar eru gullkorn eins og:

"Allt í einu stökk ljósastaur í veg fyrir mig"

"Ég þurfti að beygja oft og mörgum sinnum, til að hitta hann loksins"

Einar Indriðason, 15.7.2007 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Feb. 2025

S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband