Þessi saga gæti svo vel átt við mig

Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið og taka vel til í öllu herberginu. Hún sá að það var umslag á miðju rúminu og á því stóð: TIL MÖMMU. Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið og las skjálfhent bréfið sem í því var.

Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman. Ég geri þetta svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér. Ég hef að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína. En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til hans því að ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé svo glaður með það. Hann er þegar búinn að kaupa hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur. Hann er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum og ég er svo innilega sammála honum með það. Ahmed hefur kennt mér það að marijuana gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því og kókaíni og E-töflum handa okkur báðum. En ég vona líka að vísindamenn finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið!! En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa. Þar að auki er Ahmed orðinn orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera. Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin þín.

Þín dóttir Guðrún.

PS: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt. Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í efstu skrifborðskúffunni. Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir mig að koma heim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Hehe, góð saga. Verst að manni datt þetta ekki í hug þegar maður kom heim með slaka einkunn

Björg K. Sigurðardóttir, 9.7.2007 kl. 02:24

2 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 9.7.2007 kl. 11:09

3 Smámynd: Ólöf

Hehehe þessi er góð

Ólöf , 9.7.2007 kl. 15:56

4 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Guðríður Pétursdóttir, 9.7.2007 kl. 16:05

5 identicon

Góð

Díta (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 17:36

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Snilld. En ég var farin að hafa áhyggjur af blessuðu barninu.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.7.2007 kl. 20:04

7 Smámynd: Saumakonan

ROFL!!! alger snilld!!!!!

Saumakonan, 9.7.2007 kl. 20:19

8 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

hahha frábært

Sædís Ósk Harðardóttir, 9.7.2007 kl. 23:15

9 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Iss, ég kom aldrei heim með vondar einkunnir. Annars er það eina sem ég kvart yfir í þessari sögu nafnið á manninum. Myndin sem er gefin af honum bendir ekki til múslima og ég held að smá rasismi hafi skotið sér þarna inn. Hugsið frekar um Trailer Park Boys. Ég held að gott nafn væri Randy. 

Kristín M. Jóhannsdóttir, 10.7.2007 kl. 17:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er 5 barna móðir og nemi á listabraut FB.

OG ÉG ER ÓGEÐSLEGA FYNDIN!!!

ÉG FER BARA AÐ HLÆGJA ÞEGAR ÉG HUGSA UM ÞAÐ.

Feb. 2025

S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • IMG_7817
  • IMG_7806
  • IMG_7794
  • Picture 028
  • Picture 027

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband